Breska ríkisútvarpið, BBC, segir að Jay hafi verið staddur Rural de Teno-þjóðgarðinum á vesturhluta Tenerife þegar síðast spurðist til hans.
Vinkona hans, Lucy, heyrði í honum í gærmorgun en þá sagðist hann vera villtur, þurfa á vatni að halda og að síminn hans væri að verða rafmagnslaus. Sambandið slitnaði skömmu síðar og hefur ekkert spurst til Jay síðan þá.
Lucy og Jay voru stödd á Tenerife til að vera viðstödd NRG-tónlistarhátíðina og segir Lucy að Jay hafi farið heim með fólki sem hann kynntist á ferðalaginu. Hann hugðist svo ganga heim í gærmorgun en virðist ekki hafa áttað sig á því hversu löng og torfær leiðin var.
Leitarhópar hafa verið kallaðir út og þá er búið að lýsa eftir Jay á veggspjöldum á fjölförnum stöðum á Tenerife.