fbpx
Sunnudagur 05.janúar 2025
Fréttir

Elín Hirst óttast um velferð föður síns

Ritstjórn DV
Mánudaginn 6. maí 2024 10:04

Elín Hirst er í hópi aðstandenda sem gagnrýna fyrirhugaðar framkvæmdir á Sóltúni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlakonan Elín Hirst tekur undir læknunum Einari Stefánssyni og Gesti Pálssyni sem hafa áhyggjur af fyrirhuguðum framkvæmdum á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.

Sjá einnig: Einar og Gestur hafa áhyggjur af eiginkonum sínum – Eins og martröð mánuðum saman

Einar og Gestur skrifuðu grein í Morgunblaðið í dag en eiginkonur þeirra glíma við heilabilun og hafa notið góðrar aðhlynningar og atlætis á Sóltúni. Bentu þeir á að nú séu blikur á lofti en gera áætlanir ráð fyrir að bæta eigi við 64 herbergjum við þau 92 sem fyrir eru.

Einari og Gesti lýst ekki á blikinu enda stendur til að gera þetta með íbúana í húsinu. Þetta sé ekki gott enda heilabilaðir sjúklinga sérstaklega næmir fyrir hávaða og ónæði, meðal annars vegna þess að þeir gera sér ekki grein fyrir orsökum og venjast ekki áreiti vegna minnisleysis.

Elín Hirst skrifar aðsenda grein sem birtist á vef Vísis þar sem hún viðrar sömu áhyggjur, en aldraður faðir hennar býr í Sóltúni. Segist hún óttast um velferð hans á komandi misserum.

„Nú í haust er ráðgert að stækka hjúkrunarheimilið Sóltún og bæta rúmlega 60 herbergjum við þau 92, sem fyrir eru á. Þetta á að gera með því að byggja nýja hæð ofan á húsið og lengja sumar álmurnar. Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi, að íbúarnir sem eru bæði aldraðir og sjúkir, eiga að búa í húsinu á meðan á framkvæmdunum stendur. Meðal dvalartími sjúklinga í Sóltúni er 2 ár, sem er einmitt sá tími sem stækkun hússins mun taka,“ segir Elín í grein sinni.

Hún segir ljóst að byggingaframkvæmdir muni skapa mikla vanlíðan meðal íbúanna, vegna hávaða, ónæðis og mengunar sem þeim mun fylgja.

„Fæst okkar sem hraust erum höfum áhuga á því að búa í húsnæði sem er í smíðum hvað þá sjúklingarnir í Sóltúni sem eru afar viðkvæmur hópur sem er að ljúka sínu ævikvöldi. Síðustu ævidagarnir verða því afar nöturlegir við þessar aðstæður, svo ekki sé fastar að orði kveðið.“

Elín segir að hópur aðstandenda hafi nú tekið sig saman um að standa vörð um velferð íbúa Sóltúns og hafa leitað til yfirvalda með kröfu um að tafarlaust verði hætt við þessar „glórulausu“ framkvæmdir eins og hún orðar það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Landlæknir Bandaríkjanna vill vara við krabbameinshættu sem fylgir áfengisneyslu – Áfengisiðnaðurinn nötrar

Landlæknir Bandaríkjanna vill vara við krabbameinshættu sem fylgir áfengisneyslu – Áfengisiðnaðurinn nötrar
Fréttir
Í gær

Ákvað að fara ekki í bæinn á gamlárskvöld heldur vera heima og ná myndbandi af ótrúlegu samspili

Ákvað að fara ekki í bæinn á gamlárskvöld heldur vera heima og ná myndbandi af ótrúlegu samspili
Fréttir
Í gær

Tónlistarmaðurinn Árni Grétar „Futuregrapher“ Jóhannesson er látinn

Tónlistarmaðurinn Árni Grétar „Futuregrapher“ Jóhannesson er látinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Armando biður um hjálp – Hefur þú séð þennan bíl?

Armando biður um hjálp – Hefur þú séð þennan bíl?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur með ákall eftir umdeildar hækkanir: „Getum við ekki öll verið nokkuð sammála þessu?“

Vilhjálmur með ákall eftir umdeildar hækkanir: „Getum við ekki öll verið nokkuð sammála þessu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ungur Blönduósingur varð fyrir hrottalegri hópárás í Liverpool

Ungur Blönduósingur varð fyrir hrottalegri hópárás í Liverpool
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur vill banna þetta á íþróttaviðburðum – „Sendir röng skilaboð til barna og ungmenna“

Guðmundur vill banna þetta á íþróttaviðburðum – „Sendir röng skilaboð til barna og ungmenna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýr þingmaður Flokks fólksins lætur Þórarin Inga heyra það: „Stundum er gott að hafa vit á því að þegja“

Nýr þingmaður Flokks fólksins lætur Þórarin Inga heyra það: „Stundum er gott að hafa vit á því að þegja“