fbpx
Fimmtudagur 06.febrúar 2025
Fréttir

Geir H. Haarde opinberar hvern hann ætlar að kjósa

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 24. maí 2024 12:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins á árunum 2005 til 2009, hefur opinberað hvern hann ætlar að kjósa í forsetakosningunum eftir rúma viku.

Í færslu á Facebook segist Geir ætla að kjósa Höllu Hrund Logadóttur og fyrir því eru nokkrar ástæður.

„Ég hef fylgst með Höllu Hrund í allmörg ár allt frá því hún leitaði ráða hjá mér varðandi framhaldsnám í Bandaríkjunum. Hún vakti strax athygli mína fyrir eldmóð og atorku. Hún er velviljuð, á auðvelt með að tengjast öðru fólki og hefur þann góða kost að hafa meiri áhuga á viðfangsefnum sínum en sjálfri sér. Ég tel að hún hafi það sem til þarf til að gegna hinu mikilvæga embætti forseta Íslands með glæsibrag. Þess vegna ætla ég að kjósa hana.“

Geir segir að það skipti máli hver er forseti, ekki vegna þess að forsetinn hafi pólitísk völd – þar sem þau eru í raun lítil – heldur vegna þess að góður forseti getur haft mikið og jákvætt áhrifavald út um allt samfélagið og beitt sér til góðs á fjölmörgum sviðum. Segir Geir að um þetta höfum við góð dæmi úr tíð fyrri forseta.

„Forseti Íslands þarf auðvitað að kunna góð skil á sínum stjórnskipulegum skyldum, sem vissulega skipta máli þegar á þær reynir. Ég er ekki í vafa um að Halla Hrund mun sinna þeim skyldum fumlaust og af fullri festu en jafnframt virðingu fyrir því að á Íslandi er þingræði og kjósendur velja sér þingmenn og ríkisstjórn til að fara með daglega pólitíska stjórn í landinu.“

Geir segir að forsetinn þurfi líka að vinna að samstöðu og einingu þjóðarinnar á nýjum tímum í síbreytilegu samfélagi.

„Halla Hrund hefur sýnt að hún hefur reynslu og burði til að sinna því hlutverki svo vel fari. Samhliða þessu er forsetinn mikilvægt tákn fullveldis íslensku þjóðarinnar gagnvart öðrum ríkjum og fulltrúi hennar við ýmis mikilvæg tilefni á erlendri grundu. Það verkefni mun leika í höndum Höllu Hrundar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Fær trygginguna endurgreidda þó að Mosfellsbær hafi borgað hana

Fær trygginguna endurgreidda þó að Mosfellsbær hafi borgað hana
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Kona ók dópuð eftir Suðurlandsvegi með barn í bílnum

Kona ók dópuð eftir Suðurlandsvegi með barn í bílnum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtalækkunin þýðir fyrir 50 milljóna króna húsnæðislán

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtalækkunin þýðir fyrir 50 milljóna króna húsnæðislán
Fréttir
Í gær

„Forsetinn er opinberlega að kalla eftir þjóðernishreinsunum þar sem hann situr við hliðina á stríðsglæpamanni“

„Forsetinn er opinberlega að kalla eftir þjóðernishreinsunum þar sem hann situr við hliðina á stríðsglæpamanni“
Fréttir
Í gær

Milljónir vantar hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga og fyrrverandi stjórnendur grunaðir um lögbrot

Milljónir vantar hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga og fyrrverandi stjórnendur grunaðir um lögbrot
Fréttir
Í gær

Sótt að Gunnari Þórðarsyni: Kröfðust þess að leigjandi íbúðar hans yrði borinn út – Segja að börnin þori ekki heim til sín

Sótt að Gunnari Þórðarsyni: Kröfðust þess að leigjandi íbúðar hans yrði borinn út – Segja að börnin þori ekki heim til sín