Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar stefnir á að þétta byggð á hinu svokallaða Óla Run túni í Suðurbænum. Byggð verða um tíu einbýlishús á túninu. Íbúum í nágrenninu hefur verið mjög umhugað að halda túninu sem grænu svæði.
Mál túnsins voru rædd á fundi skipulags og byggingarráðs á fimmtudag, 16. maí. Þar var lagt fram að breyta aðalskipulagi bæjarins með breytta landnotkun túnsins í huga.
„Hugmynd okkar er að þarna komi, nokkur sérbýli, sennilega tæplega tíu,“ segir Skarphéðinn Orri Björnsson, formaður ráðsins, við DV. „Jafnframt verði svæðið að öðru leyti skipulagt og gert að útivistarsvæði fyrir hverfið.“ Verður byggt á um tíunda hluta túnsins.
Á fundinum ítrekuðu fulltrúar Samfylkingar að græn svæði stuðli að bættri lýðheilsu, útivist og gæðum byggðar.
„Með nýrri byggð á Óseyrarsvæði mun íbúum svæðisins fjölga og um leið eykst þörfin eftir grænum svæðum. Samfylkingin leggur til að stofnaður verði starfshópur sem skoði möguleika umræddra svæða í samráði við íbúa Hafnarfjarðar og aðra hagaðila,“ segir í bókun þeirra.
Íbúar í nágrenninu eru sumir hverjir uggandi um að þrengt verði að túninu. En slíkt hefur ítrekað verið í umræðunni áður. Meðal annars árin 2018 og 2022, en þá var hætt við áformin eftir mótmæli íbúa.