fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Fréttir

Fyrsta hleðslustöðvarfyrirtækið í Evrópu til að bjóða vottaðar kolefniseiningar

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 21. maí 2024 15:30

Frá undirritun kaupsamninganna en viðstaddir voru Níels Einar Reynisson frá Verkís, Sigurður Ástgeirsson frá Ísorku, Brynjar Elefsen frá BL, Sigurður Berndsen frá Hertz, Halldór Reykdal frá Pipar/TBWA og Aríel Jóhann Árnason frá Súrefni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í fyrsta skipti á Íslandi verða til vottaðar kolefniseiningar sem hægt er að nýta strax.  Á Íslandi hafa hingað til aðeins verið í boði kolefniseiningar í bið eins og þekkist til dæmis úr skógræktarverkefnum. Í lok mars kláraðist formlega það ferli Ísorku að votta kolefniseiningar út frá aðferðafræðinni VM0038 frá alþjóðlega staðlinum Verra sem metur hvernig aukið aðgengi rafhleðslustöðva spornar gegn bruna á jarðefnaeldsneyti. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu.

„Ísorka er fyrsta fyrirtækið í Evrópu sem tekst á við þessa vottun, áfanginn er því mikil tímamót og staðfestir mikilvægi orkuskipta í vegferðinni að aukinni sjálfbærni,“ segir Sigurður Ástgeirsson, framkvæmdastjóri Ísorku. Síðan 2016 hefur Ísorka mælt og viðhaft rekjanleika í allri starfsemi sinni. „Sú framsýni tryggir gæðin og gerir þessa vottun mögulega. Jafnframt styðja verkefni Ísorku við markmið Íslands í loftlagsmálum sem og heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna.“ segir Sigurður.

Vottunin er alþjóðleg og gildir fyrir rafhleðslustöðvar fyrir bæði lítil og stór farartæki. Aðferðafræðin býður leið til að reikna út og votta losun gróðurhúsalofttegunda út frá uppsetningu, rekstri og notkun rafhleðslustöðva og hleðslu viðeigandi rafbílaflota og vottar kolefniseiningarnar út frá forvörninni. Áætlað er að starfsemin komi í veg fyrir losun á að meðaltali um 37.500 tonnum af CO2 á ári og 375.000 tonnum af CO2 á öllu vottunartímabilinu (2021-2030) auk þess að skrá í loftlagsskrá Verra vottaðar kolefniseiningar út frá þessu magni. Vottun Ísorku nær aftur í tímann, allt til janúar 2022.

„Þessi vinna markar tímamót á Íslandi. Fyrirtæki geta nú með ábyrgum hætti tekið ábyrgð á eigin mengun og kolefnisspori með vottuðum kolefniseiningum og kolefnisjafnað þannig bæði hratt og örugglega.“ segir Sigurður.

Hingað til hafa aðeins verið í boði svokallaðar „einingar í bið“ frá örfáum skógræktarverkefnum á Íslandi en ólíkt þeim geta lögaðilar nýtt virkar kolefniseiningar jafnóðum til að öðlast kolefnishlutleysi. 

 Reglur verið óljósar fram til þessa

„Nú er loks kominn annar valkostur fyrir fyrirtæki sem vilja nýta kolefniseiningar í sínar mótvægisaðgerðir en vilja jafnframt fylgja leikreglunum um ábyrga og vottaða kolefnisjöfnun,“ bætir Aríel Jóhann Árnason, framkvæmdastjóri Súrefnis við. „Fram til þessa hafa reglur á þessum nýja markaði verið óljósar en með tilkomu vottaðra og virkra eininga geta íslensk fyrirtæki nú staðið jafnfætis samkeppnisaðilum erlendis þegar kemur að sjálfbærni.“

Súrefni vottaðar einingar (surefni.is); ráðgjafastofa og kolefnisjöfnunarhús hafði yfirsýn með vottunarferlinu og sinnir nú sölu eininganna. Fyrirtækin Verkís, bílaumboðið BL, Pipar/TBWA og Hertz hafa þegar fest kaup á einingum til eigin mótvægisaðgerða í loftslagsmálum. 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Drengurinn sem grunaður er um hnífstunguárásina á menningarnótt áfram í gæsluvarðhaldi

Drengurinn sem grunaður er um hnífstunguárásina á menningarnótt áfram í gæsluvarðhaldi
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Vinsælasti borgarfulltrúinn ætlar á þing

Vinsælasti borgarfulltrúinn ætlar á þing
Fréttir
Í gær

Tveir Íslendingar sagðir hafa svikið rúmlega hálfa milljón Bandaríkjadala út úr fyrirtæki í San Francisco

Tveir Íslendingar sagðir hafa svikið rúmlega hálfa milljón Bandaríkjadala út úr fyrirtæki í San Francisco
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lést í Hlauptungufossi var frá Katar

Maðurinn sem lést í Hlauptungufossi var frá Katar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Í fyrsta skiptið í mínu lífi var ég meðhöndlaður eins og hundur“

„Í fyrsta skiptið í mínu lífi var ég meðhöndlaður eins og hundur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dópsali með fulla vasa af peningum sagðist hafa verið að selja vændi

Dópsali með fulla vasa af peningum sagðist hafa verið að selja vændi