Lögreglan fékk tilkynningu í nótt um slagsmál í miðbænum um hálffimm. Þegar lögregla kom á staðinn voru allir málsaðilar að ganga á brott og virtist enginn slasaður eftir áflogin. Allir á vettvangi afþökkuðu aðstoð lögreglu.
Kemur þetta fram í dagbók lögreglunnar. Um tvöleytið var tilkynnt um aðila sem var æstur inn á matsölustað. Við afskipti lögreglu gaf aðilinn upp ranga kennitölu og neitaði svo að segja til nafns og hafði verið með ógnandi tilburði við starfsfólk. Við komu á lögreglustöð kom í ljós að aðilinn er 17 ára og komu foreldrar að sækja viðkomandi á lögreglustöðina.
Um hálftíma síðar var tilkynnt um slagsmál í miðbænum. Við komu á staðinn ræddi lögregla við vitni sem bentu á upphafsmann slagsmálanna og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð. Viðkomandi var vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
Tilkynnt um öldauðan aðila í strætóskýli. Lögregla fór á staðinn og fékk aðilinn að gista í fangaklefa þangað til hann væri í ástandi til að sjá um sig sjálfur. Auk þess voru mörg minniháttar mál, m.a. vegna ölvunar og óláta í miðbænum.
Klukkan hálftvö barst tilkynning um eld í póstkassa í fjölbýlishúsi. Lögreglan gat slökkt eldinn án aðkomu slökkviliðs og hafði sameign fyllst af reyk. Slökkvilið kom á vettvang skömmu síðar og aðstoðaði við reykræstingu.