fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Segir Norður-Kóreu prófa vopn sín í Úkraínu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 11. apríl 2024 06:30

Kim Jong-un sendir Rússum vopn og skotfæri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vitað er að einræðisstjórnin í Norður-Kóreu hefur aðstoðað Rússa í stríðsrekstrinum í Úkraínu með því að leggja þeim til skotfæri fyrir fallbyssur og flugskeyti. Þetta veitir Norður-Kóreu gullið tækifæri til að prófa sín eigin vopn í raunverulegu stríði.

Þetta sagði Charles Flynn, háttsettur bandarískur herforingi, í samtali við Bloomberg og sagði þetta hugsanlega geta hjálpað Norður-Kóreu við að betrumbæta flugskeyti sín.

„Ég held að norðurkóreski herinn hafi ekki á síðari tímum haft aðgang að vígvallartilraunastofu eins og Rússar gefa þeim tækifæri til að hafa í Úkraínu,“ sagði Flynn.

Talið er að Norður-Kórea hafi látið Rússum rúmlega þrjár milljónir fallbyssukúla í té auk fjölda flugskeyta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest
Fréttir
Í gær

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“