fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024
Fréttir

Málþing um bóluefni – Segjum frá!

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. apríl 2024 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Málþing á vegum félagsins Frelsi og ábyrgð verður haldið í Reykjavík Natura fimmtudaginn 4. apríl kl. 18 til 21.

Yfirskriftin er: „Segjum frá! Málþing sem á erindi við okkur öll.“

Eftirfarandi erindi verða flutt á málþinginu:

Dr. Aseem Malhotra hjartasérfræðingur á Bretlandi fjallar um bólusetningar gegn Covid-19 og tengsl þeirra við hjartasjúkdóma. Malhotra var ötull talsmaður Covid-19 bóluefnanna í upphafi, en eftir að hann tók að gera sér grein fyrir hliðarverkunum þeirra hefur hann barist fyrir því að þau verði tekin af markaði.

Dr. Mattias Desmet, sálfræðiprófessor við háskólann í Ghent í Belgíu er höfundur metsölubókarinnar The Psychology of Totalitarianism þar sem hann rekur kenningar sínar um fjöldadáleiðslu (e. mass formation). Desmet fjallar um hvernig sálfélagslegar aðstæður í samfélaginu ollu skilyrðislausri fylgispekt almennings við tilskipanir sem hvorki áttu sér stoð í vísindum né heilbrigðri skynsemi.

Justine Tanguay er reyndur málflutningsmaður sem hefur helgað feril sinn því að standa vörð um réttindi barna. Hún fjallar um spillingu innan heilbrigðisgeirans í Bandaríkjunum og hvernig hún hefur smitast um heim allan.

Dr. Peter McCullough er sá fræðimaður innan læknavísindanna sem gefið hefur út hvað flestar ritrýndar greinar, en hann er hjartalæknir, lyflæknir og faraldsfræðingur. McCullough fjallar í streymi um alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll vegna Covid-19 bóluefna og meðferðarúrræði fyrir þá sem orðið hafa fyrir skaða.

Að lokum greina tveir Íslendingar sem urðu fyrir alvarlegum skaða vegna bóluefnanna frá reynslu sinni.

Málþingið hefst kl. 18 á Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 51, 102 Reykjavík.

Aðgangseyrir er kr. 5.000 og leggist inn á reikning Frelsis og ábyrgðar, 1161-05-250164 kt. 491121-3510 eða greiðist með reiðufé á staðnum.

Sjá Facebook-síðu málþingsins

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hættuleg umferðarljós í Langholtshverfi vekja reiði íbúa – „Það munaði svo litlu að keyrt væri yfir hana“

Hættuleg umferðarljós í Langholtshverfi vekja reiði íbúa – „Það munaði svo litlu að keyrt væri yfir hana“
Fréttir
Í gær

Banaslys í Garðabæ

Banaslys í Garðabæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meintur raðnauðgari ákærður fyrir brot gegn fjórum konum – Nýtti sér að þær gátu ekki spornað við ofbeldinu og tók háttsemina upp

Meintur raðnauðgari ákærður fyrir brot gegn fjórum konum – Nýtti sér að þær gátu ekki spornað við ofbeldinu og tók háttsemina upp
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirlýsing frá Ice Pic Journeys – Harma mjög banaslysið

Yfirlýsing frá Ice Pic Journeys – Harma mjög banaslysið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

CIA segir að markmiðið hafi verið að drepa þúsundir manna

CIA segir að markmiðið hafi verið að drepa þúsundir manna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ung kona lést þegar eftirlíkingu af víkingaskipi hvolfdi í Noregi – Festist undir bátnum

Ung kona lést þegar eftirlíkingu af víkingaskipi hvolfdi í Noregi – Festist undir bátnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helgi Magnús ákveðinn: „Ég mun fara alla leið með þetta og gef ekkert eftir“

Helgi Magnús ákveðinn: „Ég mun fara alla leið með þetta og gef ekkert eftir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björguðu manni úr sjálfheldu – Kaldur og skelkaður þegar hann kom niður

Björguðu manni úr sjálfheldu – Kaldur og skelkaður þegar hann kom niður