fbpx
Miðvikudagur 14.ágúst 2024
Fréttir

Tilkynning frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vegna mislingasmits

Ritstjórn DV
Mánudaginn 5. febrúar 2024 11:42

Heilsugæslan í Efstaleiti. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðbrogarsvæðisins vegna mislingasmits sem kom upp um helgina er lögð sérstök áhersla á að fólk eigi ekki að koma beint á heilbrigðisstofnun ef grunur er um mislingasmitsmit heldur hringja í síma 1700 eða hafa samband á netspjalli Heilsuveru. Í tilkynningunni er einnig ítrekað að foreldrar barna sem ekki eru bólusett eru hvattir til að láta bólusetja börn sín gegn mislingum. Tilkynningin fer hér á eftir:

Mislingasmit kom upp hér á landi nýverið. Ef þú telur að þú eða börnin þín séu með mislinga getur þú hringt í síma 1700 eða haft samband í gegnum netspjall Heilsuveru og við ráðleggjum þér með næstu skref.

Athugið að ef grunur er um smit á ekki að koma á heilsugæslustöð eða sjúkrahús vegna hættu á hópsmiti.

Heilsugæslan hvetur foreldra til að tryggja að börn séu bólusett við mislingum.

Börn 0-6 mánaða

  • Börn 0-6 mánaða eru ekki bólusett.
  • Ef upp kemur hópsýking eru foreldrar hvattir til að halda börnum á þessum aldri frá margmenni.

Börn 6-18 mánaða

  • Börn 6-18 mánaða geta aðeins fengið bólusetningu ef talin er hætta á að þau smitist eða hafi smitast.
  • Bólusetning innan þriggja sólarhringa frá smiti minnkar líkur á veikindum.
  • Ef upp kemur smit fer smitrakning í gang. Haft verður samband við foreldra með skilaboðum á Mínum síðum á Heilsuveru eða SMS.
  • Ef foreldrar fá ekki skilaboð er ekki boðið upp á bólusetningu fyrir börn á þessum aldri.
  • Bólusetning sem gerð er fyrir 12 mánaða aldur veitir ekki langtímavörn og þarf þá að endurtaka bólusetninguna við 18 mánaða aldur og svo aftur við 12 ára aldur.

Börn 18 mánaða og eldri

  • Foreldrar barna 18 mánaða og eldri sem ekki hafa verið bólusett eru hvattir til að þiggja bólusetningu fyrir börn sín sem fyrst.
  • Best er að hafa samband við sína heilsugæslustöð og fá tíma í bólusetningu.
  • Ef foreldrar eru ekki vissir hvort barn er bólusett má finna upplýsingar um það á Mínum síðum á Heilsuveru. Einnig er hægt að hafa samband við Upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í síma 1700 eða í gegnum netspjall Heilsuveru og fá upplýsingar um bólusetningu barna.

Fullorðnir einstaklingar

  • Ekki á að bólusetja fólk sem er fætt fyrir 1970 þar sem miklar líkur eru á að þeir hafi fengið mislinga.
  • Ef upp kemur smit í nánasta umhverfi fullorðinna sem fæddir eru 1970 eða síðar mun smitrakningarteymi hafa samband og bjóða viðkomandi bólusetningu.

Einkenni mislinga

Mislingar eru bráðsmitandi veirusjúkdómur, allt að 90 prósent útsettra smitast. Smit verður helst með úða frá öndunarfærum, til dæmis við hósta eða hnerra. Ólíkt inflúensu og kvefveirum getur mislingaveiran legið í loftinu og valdið smiti í allt að tvær klukkustundir eftir að hún berst út í andrúmsloftið.

Einkenni mislingasmits eru oftast lík flensueinkennum í byrjun og koma fram 1-3 vikum eftir smit.

  • Bólgnir eitlar
  • Hiti
  • Nefrennsli
  • Hósti
  • Höfuðverkur
  • Sviði í augum, roði og/eða vot augu
  • Útbrot sem ná yfir allan líkamann koma fram á þriðja eða fjórða degi
  • Útbrot í slímhúðum í munni eru mjög einkennandi en eru helst sýnileg fyrsta daginn sem útbrot koma fram
  • Ung börn fá oft niðurgang með hita áður en útbrotin koma fram

Upplýsingar um mislinga má finna á fræðsluvef Heilsuveru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dóttir Musk tætir í sig heimsþekktan ævisöguritara hans – „Það er andskotans brandari“

Dóttir Musk tætir í sig heimsþekktan ævisöguritara hans – „Það er andskotans brandari“
Fréttir
Í gær

Lögregla kölluð til eftir skírn í Hallgrímskirkju – „Ég er mjög hrædd því ég veit ekki hvað hann gerir næst“

Lögregla kölluð til eftir skírn í Hallgrímskirkju – „Ég er mjög hrædd því ég veit ekki hvað hann gerir næst“
Fréttir
Í gær

Sóley segir orðatiltækið „svolítið OCD“ grafa undan skilningi á þráhyggju og áráttu

Sóley segir orðatiltækið „svolítið OCD“ grafa undan skilningi á þráhyggju og áráttu
Fréttir
Í gær

Sparaði 12 milljónir á tveimur árum en íbúðin hafði á sama tíma hækkað um 18 milljónir

Sparaði 12 milljónir á tveimur árum en íbúðin hafði á sama tíma hækkað um 18 milljónir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingfesting í stóra fíkniefnamálinu – Nístandi kvíði sakborninga sem óttast afhjúpun og smánun

Þingfesting í stóra fíkniefnamálinu – Nístandi kvíði sakborninga sem óttast afhjúpun og smánun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kom starfsmanni Keflavíkurflugvallar í opna skjöldu – Sjáðu myndina

Kom starfsmanni Keflavíkurflugvallar í opna skjöldu – Sjáðu myndina