Baldur ræðir þetta meðal annars í umfjöllun Morgunblaðsins í dag um öryggismál Íslands, en bent er á það að óvissa ríki um framtíð Bandaríkjanna í NATO komist Donald Trump til valda í forsetakosningunum vestanhafs í haust.
Baldur telur að mjög erfitt verði fyrir Evrópu að sinna varnarmálum sínum án Bandaríkjanna. Staðreyndin sé samt sú að Evrópa þurfi að búa sig undir það versta og að Bandaríkin muni ekki taka forystu í vörnum álfunnar.
„Ég myndi kalla eftir því að Evrópuríki myndu gera viðbragðsáætlun. Þau þurfa að vinna heimavinnu sína bak við tjöldin, vera með áætlun um hvað þau geri ef Bandaríkin draga verulega úr umsvifum sínum í Evrópu,“ segir Baldur meðal annars.
Þegar talið berst að Íslandi segir hann skorta á almenna umræðu um öryggis- og varnarmál. Ísland hafi ekki staðið sína plikt fram að innrás Rússa í Úkraínu. Halda mætti að Ísland væri staðsett á miðjum norðurpólnum, svo lítil sé umræðan um þessi mál.
„Við ættum að forgangsraða áframhaldandi samstarfi á Norðurlöndunum, bæði einum og sér og innan NATO. Einnig þarf að forgangsraða því að hér verði loftrýmisgæsla allt árið í kring. Við megum aldrei líta út eins og við séum veikasti hlekkurinn,“ segir hann við Morgunblaðið.