Í kvöld kl. 18:27 varð jarðskjálfti að stærð 3,4, tvo kílómetra austan Kleifarvatns. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni.
Skjálftinn fannst í byggð og hafa honum fylgt nokkrir eftirskjálftar. Nokkur virkni hefur verið á þessu svæði síðustu daga.
Síðast varð skjálfti af svipaðri stærðargráðu þann 13. nóvember síðastliðinn og mældist hann 3,5 að stærð. Jarðskjálftar eru þekktir á þessu svæði.