„Ég spyr, er einhver möguleiki að senda núverandi stjórnvöld á loðnuvertíð og fá stjórnvöld frá 1973 til baka?“
spyr Baldur Borgþórsson fyrrum varaborgarfulltrúi. Í færslu á Facebook ber hann saman viðbrögð stjórnvalda við eldgosinu í Eyjum árið 1973 og rýmingu Grindavíkur 10. nóvember 2023.
Stjórnvöld ákváðu árið 1973 að reisa 500 hús til að mæta húsnæðisvanda Eyjamanna, fyrstu húsin voru afhent fjórum mánuðum eftir gos, níu mánuðum seinna var búið að afhenda öll húsin. Í dag rúmum þremur mánuðum eftir rýmingu í Grindavík er önnur umræða um frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kaup ríkisins á íbúðarhúsnæði Grindvíkinga. Margir Grindvíkingar eru enn á hrakhólum í húsnæðismálum.
Segir Baldur að árið 1973 hafi stjórnvöld komið í veg fyrir þenslu á fasteignamarkaði og síðast en ekki síst að óþægindi og óvissa Eyjamanna drægust á langinn. Í dag dragist hins vegar nagandi óvissuástand íbúa Grindavíkur á langinn og fasteignamarkaðurinn byrjar að bólgna út af þenslu.
Svokölluð Viðlagasjóðshús voru byggð á um tuttugu stöðum á landinu til að mæta húsnæðisþörf Eyjamanna eftir Vestmannaeyjagosið, þar á meðal í Grindavík.
„23.janúar 1973 :
Eldgos hefst í Eyjum.
Ríflega 5000 íbúar þurfa að yfirgefa heimili sín og fengu inni hjá vinum,ættingjum og fleirum í fyrstu.
Stjórnvöld taka ákvörðun um að reisa 500 hús til að mæta vandanum.
4 mánuðum síðar eru fyrstu húsin afhent.
9 mánuðum síðar hafa öll 500 húsin verið afhent.
Þegar Eyjamenn snúa aftur til Eyja eru húsin seld fyrir meira andvirði en til var kostað.
Komið var í veg fyrir þenslu á fasteignamarkaði og síðast en ekki síst að óþægindi og óvissa Eyjamanna drægjust á langinn.
Í dag eru mörg þessara húsa enn við hestaheilsu og eftirsótt, þrátt fyrir byggingahraða á sínum tíma.
Svona á að gera hlutina.
10.nóvember 2023 :
Grindavík rýmd, 4000 íbúar þurfa að yfirgefa heimili sín og öllum má vera ljóst að reisa þarf ný hús fyrir að minnsta kosti hluta íbúa.
14.janúar er ljóst að reisa þarf ný hús fyrir alla íbúana.
Stjórnvöld taka ákvörðun um að ræða málin.
3 mánuðum síðar er ákveðið að ræða málin frekar….
Á meðan dregst nagandi óvissuástand íbúa Grindavíkur á langinn og fasteignamarkaðurinn byrjar að bólgna út af þenslu.“