En Donald Trump, sem mun væntanlega takast á við Biden um forsetaembættið í kosningunum í nóvember, fór allt aðra leið og sakar Pútín ekki um eitt né neitt varðandi dauða Navalny. Hann tengir hins vegar örlög Navalny við sjálfan sig og settir nýlega fram ótrúlega samsæriskenningu.
Í færslu á Truth Social, sem er samfélagsmiðill í eigu Trump, skrifaði hann: „Skyndilegt andlát Navalny gerði mér enn betur ljós hvað er að gerast í landinu okkar. Það er hæg og markviss þróun með vinstrisinnuðum, öfgasinnuðum stjórnmálamönnum, saksóknurum og dómurum sem teyma okkur eftir vegi eyðileggingarinnar. Opin landamæri, kosningasvindl og hrikalega ósanngjarnar dómsniðurstöður EYÐILEGGJA BANDARÍKIN. VIÐ ERUM HNIGNANDI ÞJÓÐ, MISHEPPNUÐ ÞJÓÐ.“
Ekki er annað að sjá en hann sé að tengja örlög Navalny við sínar eigin hremmingar í bandarískum dómsölum.
Auk fyrrgreindra ummæli deilir hann langri samsæriskenningu sem var sett fram í miðlinum „Tippinsigts“ en í henni eru dauði Navalny, dómsmál Trump og vandamál Bandaríkjanna tengd saman á undarlegan hátt.
Inntakið í þessari undarlegu grein í „Tippinsigts“ er að Trump sé fórnarlamb ofsókna frá Biden og séu þær af sama meiði og þær ofsóknir sem Navalny sætti frá Pútín. Einnig er bent á að Navalny hafi „ítrekað komist í kast við rússnesk lög“ en á hinn bóginn hafi Trump ekki komist í kast við lögin. „Trump er ekki Navalny,“ segir í greininni.