Anna hefur verið búsett á Tenerife í fjögur og hálft ár þar sem hún unir hag sínum vel. Hún heldur úti dagbók á Facebook þar sem hún segir frá því sem á daga hennar drífur og vekja pistlarnir jafnan mikla athygli.
Í dag skrifar hún um Íslendinga á eyjunni fögru sem hún kallar Paradís.
„Nei, það er nítjándi í dag“ sagði kona á íslensku í símann þegar ég mætti henni á leið heim af Búkkanum í gærkvöldi. Ég hváði við, en áttaði mig svo á því að Guðrún Sigríks var þarna á ferð, ein af Íslendingunum sem eiga vetrardvöl á Tenerife.“
Anna bendir á að Íslendingum fjölgi hratt á svæðinu og skýtur hún á að þeir hafi verið kannski 100 áður en kórónuveirufaraldurinn skall á, en svo farið niður í 50 þegar faraldurinn var í hámarki.
„Þeir eru að minnsta kosti 300 í dag en vafalaust mun fleiri og fer fjölgandi. Með þessu á ég við þá sem búa hér að staðaldri eða hafa hér vetursetu, en ekki þá sem dvelja hér í örfáar vikur, en þeir skipta þúsundum.“ Ég skil það mjög vel, enda gott að dvelja og búa á Tenerife.“
Anna sagði einmitt í færslu á dögunum að hún muni ekki eftir öðrum eins vetri síðan hún flutti til Tenerife – hann hafi verið einkar góður og veðrið dálítið annað en Íslendingar eiga að venjast, jafnvel á bestu sumardögum.
„Fyrsti veturinn minn hérna var vissulega góður, en það komu kaldir dagar inn á milli og við bölvuðum kuldanum þar sem hámarkshiti dagsins rétt náði 20°C og einn daginn náði hann einungis 19°C og þá var svo sannarlega kalt í Paradís. Næstu þrír vetur á eftir voru enn kaldari, hámarkshiti dagsins rétt náði 19°C og í fyrra nokkrum sinnum 18°C og lágmarkshiti næturinnar fór iðulega niður í 13°C og þá var kalt í Paradís. Þennan vetur veit ég aldrei þess dæmi að hámarkshiti dagsins hafi farið niður fyrir 22°C og lágmarkshiti næturinnar niður fyrir 17°C,“ sagði hún og bætti við að lífið léki við eyjarskeggja.