fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Garðar segir að gagnrýnin á Rapyd sé ómálefnaleg og ómakleg

Ritstjórn DV
Mánudaginn 19. febrúar 2024 15:30

Garðar (t.v) segir gagnrýnina ómaklega.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Garðar Stefánsson, forstjóri Rapyd á Íslandi, segir að kröfur um sniðgöngu á Rapyd á Íslandi í nafni mannréttinda sé ómálefnaleg og ómakleg. Hart hefur verið sótt að greiðslumiðlunarfyrirtækinu að undanförnu vegna tengingar þess við Ísrael. Fyrirtækið er þaðan og forstjóri þess, Arik Shtilman, hefur stutt hernaðaraðgerðir Ísraelshers á Gasa og Vesturbakkanum.

Meðal þeirra sem gengið hafa fram hvað harðast í gagnrýninni er kvikmyndagerðarmaðurinn Björn B. Björnsson. Hann hefur skrifað nokkrar greinar um Rapyd, nú síðast grein þar sem hann gagnrýndi skrif Garðars sem birtust á vef Vísis og í Morgunblaðinu í síðustu viku.

Sjá einnig: Björn tætir í sig skrif Garðars: „Það er ekkert flókið við það sem þarna er að gerast“

Í grein sem Garðar skrifar á Vísi í dag svarar hann fyrir þá gagnrýni sem síðasta grein hans fékk.

„Í grein minni sem birtist í síðustu viku benti ég á staðreyndir um Rapyd á Íslandi sem svar við ómálefnalegri gagnrýni og rangfærslum fámenns hóps fólks um fyrirtækið og starfsmenn þess. Ég virði það að fólk hafi ólíkar skoðanir og vissi að grein mín kynni að kalla fram viðbrögð enda gengur þessi fámenni hópur langt í að reyna að tengja Rapyd á Íslandi við átök í Mið-Austurlöndum. Slíkum rangfærslum verður ekki svarað. Hvað varðar rangfærslur og útúrsnúninga um raunverulegt eignarhald Rapyd á Íslandi vil ég hins vegar benda á eftirfarandi,“ segir Garðar.

Hann segir að Rapyd á Íslandi sé vissulega íslenskt fyrirtæki, með íslenska kennitölu, stofnað hér á landi og hafi haft hér starfsstöð í tugi ára. Hér starfi 180 starfsmenn sem þurfa að sitja undir ómálefnalegum áróðri um sinn starfsvettvang.

„Umræða um eigendaskráningu í fyrirtækjaskrá, sem átti að gjaldfella grein mína og gera hana ótrúverðuga, byggir á vanþekkingu á því hvernig skráning raunverulegra eigenda virkar. Í ljósi þess að raunverulegt eignarhald á Rapyd á Íslandi er dreift og enginn einstaklingur fer beint eða óbeint með ráðandi hlut í Rapyd á Íslandi, þ.m.t. í gegnum eignarhald í móðurfélagi, eru þeir einstaklingar sem mynda stjórn Rapyd á Íslandi skráðir sem raunverulegir eigendur. Þvert á rangar fullyrðingar, styður þetta það sem kom fram í grein minni um dreift og alþjóðlegt eignarhald á Rapyd á Íslandi,“ segir Garðar sem heldur áfram.

„Krafa um sniðgöngu á Rapyd á Íslandi í nafni mannréttinda er að mínu mati ómálefnaleg og ómakleg. Rapyd á Íslandi og það góða starfsfólk sem starfar hjá félaginu hefur ekkert með ástandið í Mið-Austurlöndum að gera og er jafn vanmáttugt um að stöðva átökin og aðrir hér á landi. Hjá Rapyd starfar stór hópur fólks sem hefur byggt upp starfsemina á síðustu 40 árum. Viðskiptavinir félagsins þekkja starfsemina af góðu einu og hafa stutt við þróun á framúrskarandi greiðsluinnviðum á Íslandi. Við erum þakklát fyrir að svo verði áfram og fyrir þá fjölmörgu viðskiptavini sem hafa ekki látið áróðurinn á sig fá,“ segir Garðar.

Hann segir að það væri óskandi að þeir sem ganga lengst í því að reyna að gera Rapyd á Íslandi að sökudólg átakanna beini kröftum sínum í raunverulegri baráttu fyrir friði og betri veröld. „Slíkt vinnst ekki með sniðgöngu á aðilum sem ekkert hafa sér til sakar unnið,“ segir hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Íslendingur fannst látinn á Spáni

Íslendingur fannst látinn á Spáni
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hlaut lífstíðarfangelsi fyrir ráðabrugg um að nauðga og drepa eina skærustu sjónvarpsstjörnu Breta

Hlaut lífstíðarfangelsi fyrir ráðabrugg um að nauðga og drepa eina skærustu sjónvarpsstjörnu Breta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum