fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Diljá Mist fékk upplýsingar sem vöktu hjá henni óhug fyrir fund sem hún sótti

Ritstjórn DV
Föstudaginn 16. febrúar 2024 14:30

Diljá Mist - Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við megum aldrei líða neins konar aðför að skoðana- og tjáningarfrelsi fólks. Sama hversu heilög réttlætingin er,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í athyglisverðri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.

Diljá var stödd í Bandaríkjunum fyrir skemmstu þar sem hún, ásamt formönnum utanríkismálanefnda frá Norður- og Eystrasaltslöndunum, tók þátt í pallborði hjá Columbia-háskóla í New York. Diljá segir í grein sinni að mikil ásókn hafi verið á viðburðinn sem bar yfirskriftina Nordic Baltic Voices og hverfðist um öryggis- og varnarmál.

Síðan segir hún í greininni:

„Við undirbúning viðburðarins fengum við upplýsingar sem vöktu hjá mér óhug. Reglum skólans varðandi upplýsingagjöf nemenda hafði sem sé nýlega verið breytt. Þannig þurfa nemendur ekki lengur að gera grein fyrir sér þegar þeir taka þátt í umræðum í skólastarfinu, þ.m.t. á fyrirlestrum og á opnum viðburðum eins og þessum. Ástæðan er að nemendur skólans höfðu orðið fyrir árásum utan skóla vegna ummæla sem þeir létu falla í skólastarfinu, þ.m.t. í tímum. Til þess að gæta öryggis nemenda hafði skólinn gripið til þess ráðs að setja það í hendur nemenda hvort þeir treystu sér til að auðkenna sig í umræðum.“

Diljá segir að þessar upplýsingar hafi komið virkilega illa við hana og verið henni ofarlega í huga að undanförnu.

„Vaxandi umburðarleysi í samfélaginu og aukin tilhneiging til þess að veitast að fólki og útskúfa fyrir skoðanir þess er nú helsta ógnin við tjáningarfrelsið. Þessi ógn bætist við ógn sem tjáningarfrelsinu stafar af hryðjuverkaárásum ofbeldisfullra ofstækismanna sem eru hluti af herför þeirra gegn frjálsri hugsun og tjáningu,“ segir hún.

Diljá bendir réttilega á að tjáningarfrelsið sé grundvallarundirstaða lýðræðissamfélaga.

„Þótt við setjum því skorður og leggjum áherslu á að tjáningarfrelsinu sé ekki beitt í meiðandi tilgangi og til valdníðslu, réttlætir tjáning í engum tilvikum ofbeldi. Ofbeldi, áreiti og ógnandi hegðun er auðvitað aldrei réttlætanleg. Þó virðist nú fullt tilefni til að taka það fram,“ segir Diljá og bætir við að langminnstur hluti fólks búi við raunverulegt tjáningarfrelsi og hópurinn virðist fara minnkandi.

„Við lesum fréttir af ofbeldisfullum árásum íranskra stjórnvalda á borgarana, m.a. vegna myndbirtinga. Við fylgjumst með rússneskum „réttarhöldum“ yfir fólki sem hefur flutt eða hlýtt á ljóðalestra sem þarlendum yfirvöldum þóknast ekki. Ekki samræmist þetta hugmyndum okkar um frjálst og lýðræðislegt samfélag og við mótmælum þessu. Svo færist þetta nær. Við hneykslumst á fréttum frá Bandaríkjunum þar sem ofbeldisverk og eignaspjöll, tengd stjórnmálaskoðunum hefur stóraukist, einkum eftir árás ofbeldismanna (mótmælenda?) á bandaríska þinghúsið.“

Diljá spyr svo hver staða skoðana- og tjáningarfrelsis er á Íslandi.

„Stöndum við vörð um frjálst og opið samfélag á Íslandi? Finnst okkur í lagi að veitast að fólki með ofbeldi vegna skoðana og tjáningar? Ógna því, hóta og hræða – skemma eigur þess? Brjóta gegn friðhelgi heimila þess,“ spyr hún en Diljá varð sjálf fyrir áreiti á dögunum þegar karlmaður veittist að henni fyrir utan Alþingi og kastaði snjóbolta eða klaka í bíl hennar.

„Framangreind aðför að tjáningarfrelsi í öðrum löndum er knúin áfram af sannfæringu fólks sem telur sig handhafa réttra skoðana. Og réttlætir aðfarirnar með því að röngum skoðunum og tjáningu annarra verði að útrýma með öllum tiltækum aðferðum. Við megum aldrei líða neins konar aðför að skoðana- og tjáningarfrelsi fólks. Sama hversu heilög réttlætingin er. Framtíð okkar allra er þar í húfi – frelsið er aldrei meira en einni kynslóð frá því að deyja út, ekki satt?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“
Fréttir
Í gær

Skotárásin á Trump – Skotmaðurinn tvítugur flokksmaður

Skotárásin á Trump – Skotmaðurinn tvítugur flokksmaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm