Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar, gagnrýnir nýtt útspil Heimdallar, unglingahreyfingar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viðburðurinn hefur verið auglýstur sem „Útför Reykjavíkur“ sem Inga segir smekklaust og taktlaust í ljósi þess sem er að gerast í heiminum.
Í myndbandi ungliðanna má sjá Júlíus Viggó Ólafsson formann vappa um í kringum Tjörnina í Reykjavík og lýsa því yfir að það sé svo illa komið fyrir Reykjavík að hún sé látin. Það þurfi því að halda útför fyrir hana og það ætli Heimdallur að gera þann 17. febrúar næstkomandi í Tjarnarbíói.
„Ungt fólk, eins og ég og þú, eigum litla von á því að geta keypt okkur heimili. Grunnþjónustan er í volli, hvort sem við séum að tala um leikskóla eða sorphirðu. Samgöngurnar virka ekki og Borgarlínan sem á að bjarga miklu hún hefur verið á leiðinni í milljón ár og virðist hvergi vera,“ segir Júlíu Viggó í myndbandinu.
Inga segist almennt hafa gaman að því þegar ungliðahreyfingar geri eitthvað róttækt og frumlegt, jafn vel þó að þær séu hinum megin á hinum pólitíska ási. Ýmislegt myndi hún líka vilja hafa betra í Reykjavík, svo sem snjómokstur og dagvistun.
„EN. Þetta finnst mér alveg stórkostlega smekklaust. Taktlaust. Forréttindafirrt,“ segir Inga.
View this post on Instagram
Á hún þá við um framsetninguna, minningarathöfn um borg sem á að vera dáin eða „kapútt“ eins og það er orðað í myndbandinu, þar sem er sagt að ekki sé lengur hægt að bjarga borginni.
„Reykjavík er ein mesta velmegunar og forréttindaborg veraldar,“ segir Inga. „Hún er ekki fullkomin, en almennt búum við hér við nánast fullkomið öryggi, réttindi, innviði og grunnþjónustu. Og öll þessi atriði eru jafnvel ekkert síðri en í nágrannasveitarfélögunum, þó að Reykjavíkurborg (og hingað til Dagur B. Eggertsson) hafi hingað til verið einhvers konar blóraböggull fyrir allt sem út af ber.“
Nefnir hún að fyrir botni Miðjarðarhafsins, það er á Gaza, sé raunverulega verið að drepa borgir. Allir innviðir þeirra borga séu sprengdir upp, húsnæði, sjúkrahús, vegir, skólar og allt annað sem Reykvíkingar eiga nóg af. Á Gaza sé líka verið að murka lífið úr borgarbúunum sjálfum.
„Það að Heimdellingar spili út svona útspili, sem á öðrum tíma gæti alveg verið brosleg og sniðug leið til að vekja athygli á málstað sínum, þegar það er þjóðarmorð í gangi á Gaza, kjarnar algjörlega heimsmynd þessa hóps. Þau sjálf eru í forgrunni og þau horfa ekki einu sinni í kringum sig áður en þau ýta á REC,“ segir Inga.
Hvetur hún Heimdælinga til þess að taka myndbandið út og tendra ljós fyrir fórnarlömb raunverulegra mannréttindabrota, ekki forréttindafólks sem sem þurfi að bíða í viku eftir sorphirðu í snjóstormi.