Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona greindist með MND-sjúkdóminn fyrir þremur árum síðan. Helga Rakel er í hjólastól og hafa vinir hennar og ættingjar nú hrundið af stað átaki um að safna fyrir hjólastól fyrir hana.
Operation í stólinn fyrir jólin kallast átakið og vilja þau sem að því standa koma Helgu Rakel í stólinn fyrir jólin.
„Okkur finnst mikilvægt að hún geti notið aukinna lífsgæða sem stóllinn býður upp á. Höfnun frá Sjúkratryggingunum á að taka þátt í kostnaði við stólinn rak okkur í þessa söfnun. Hún hefur fengið þennan frábæra IBOT lánaðan hjá Öryggismiðstöðinni af og til og þekkir því kosti hans vel. IBOT stóllinn eykur sjálfstæði hennar og gerir henni kleift að komast sinna ferða í mun meiri mæli en nú er. Stóllinn er á leið úr landi ef hann verður ekki keyptur. Góðu fréttirnar eru að það er þegar búið að styrkja hana um 5,5 milljónir þannig að nú þarf bara að ná að brúa bilið. Margt smátt gerir eitt stórt.“
DV kannaði hvað bilið er sem þarf að brúa:
„Já bilið sem þarf að brúa er 5,5 milljónir plús vsk sem er þá 6.820.000 kr. og söfnunin gengur vel.“
Þeir sem geta lagt Helgu Rakel lið geta lagt inn á neðangreindan reikning, Sólveig Guðmundsdóttir fer fyrir söfnuninni:
Kennitala: 190577-3769
Bankareikningur: 0702-15-190577