„Það er gjarnan þannig í fjölbýlishúsum að fólk skiptist í tvær fylkingar. Annars vegar hófstilltir íbúar sem vilja engar eða litlar skreytingar og svo íbúar sem telja hús aldrei oflýst og ofskreytt. Meginreglan er sú að meirihlutinn ræður því hvernig og hversu mikið fjölbýlishúsið skuli lýst og skreytt. Eru allir eigendur bundnir við slíka ákvörðun og skyldugir að taka þátt í kostnaðinum.
Það er þó háð því að jólalýsingin og skreytingarnar séu ekki úr hófi eða ljósmengun sé of mikil svo það gangi gegn friðhelgi einkalífs íbúa hússins. Það gæti því þurft samþykki allra í fjölbýlishúsinu ef skreytingarnar eru langt umfram það sem almennt gengur og gerist. Þeir sem eru á móti eru a.m.k. ekki skyldugir til að taka þátt í kostnaðinum. Það getur þó verið matskennt hvað teljist vera eðlilegt og hófstillt í þessum efnum. Alla jafna koma húseigendur sér þó saman um þessi atriði,“
segir Hildur Ýr Viðarsdóttir, lögmaður og formaður Húseigendafélagsins, í grein sinni á Vísi. Segir hún að reglulega hafi verið leitað til Húseigendafélagsins vegna jólaskreytinga og jólaljósa í gegnum árin. Nú er tíminn þar sem jólaskreytingar standa sem hæst og í greininni fer Hildur yfir hvort megi skreyta út í hið óendanlega og hvort einhver takmörk séu fyrir því hversu mikið og hvernig má skreyta. Sitt sýnist hverjum líka um hvað teljist hæfilegar jólaskreytingar. Einnig eru skiptar skoðanir um hvað teljist til fallegra skreytinga og hverjar teljist hreinlega vera ljósmengun.
„Svo eru til dæmi um öfgar í hina áttina, þ.e. að húsfélag fjöleignarhúss ákveður að hafa engar sameiginlegar jólaskreytingar eða jafnvel leggja bann við að eigendur setji upp eigin jólaskraut á svalir sínar og glugga. Slíkt bann húsfélags fær líklega ekki staðist enda hefur húsfélag ekki vald til að grípa svo afgerandi inn í eignarrétt og eignarráð eigenda einstakra séreignarhluta. Hins vegar gæti húsfélag sett nánari reglum um jólaljós, umfang þeirra og sett því ákveðnar skorður. Þá þekkist það að arkitektar húsa hafi bannað jólaljós svo sköpunarverk þeirra njóti sín.
Ef einhver íbúðareigandi heldur ekki jól, t.d. af trúarlegum ástæðum, þá verður hann allt að einu að lúta meirihluta ákvörðun og una við uppsett ljós og skraut. Viðkomandi verður meira að segja að borga sinn hlut í skreytingunum. Reglur fjöleignarhúsalaga miðast við venjulegt fólk og meðalhóf og eigendur með sérþarfir eiga ekki kröfu á því að aðrir eigendur taki tillit til þess og lagi sig að þeim.“
Hildur bendir á að það eru oft eigendur sérbýlis sem ganga hvað lengst í ljósadýrðinni og má segja að sum hús og lóðir standi í ljósum logum í desember. „Það er augljóst að miklar ljósaseríur og ekki síst þær blikkandi geta plagað þá sem í nágrenninu búa og vilja hafa frið og ró. Fólk hefur þó yfirleitt sýnt þessu umburðarlyndi með það í huga að þetta gangi yfir og taki fljótt af. Reyndar er það svo að það er alltaf að verða fyrr og fyrr sem landsmenn byrja að jólaskreyta. Í sumum tilvikum hafa nágrannar þeirra sem mest skreyta orðið fyrir átroðningi og jafnvel tjóni af völdum þeirra sem engin lóðarmörk virða til að komast til að berja jólaskreytingar augum.“
Engin lög gilda um jólaskreytingar og jólaljós í sérbýli. „Ef slíkt veldur nágrönnum ónæði þá er það ónæði sérstakt því það er árstíðabundið. Hér er litið til óskráðra reglna grenndarréttar sem gilda um hagnýtingu fasteigna og setja eigendum þeirra skorður af tilliti til nágranna. Eigandi fasteignar má gera það á sinni fasteign sem er venjulegt og eðlilegt og nágranninn verður að sætta sig við það. Nágranni verður að þola það sem telst eðlilegt og venjulegt ef það fer ekki yfir strikið og veldur nágrannanum ónæði umfram það sem hann verður að þola og er venjulegt.“
Hildur segir það matsatriði hvað er venjulegt og eðlilegt og hvenær komið er út fyrir þau mörk. Við mat á því hvort skreytingar og tilfæringar séu venjulegar og eðlilegar verði að horfa til þess sem almennt viðgengst og almenningsálitið og tíðarandinn telur við hæfi á hverjum tíma. Einnig þurfi að horfa til þess að ekki er um viðvarandi ástand að ræða og þá er væntanlega um aukið athafnafrelsi að ræða í þessum efnum um jólin.
„Þótt ónæði geti verið umtalsvert og í sumum tilvikum óþolandi þá er yfirleitt ekki tími eða efni til að grípa til lagalegra úrræða. Yfirleitt er látið sitja við kvörtunarbréf en eins er hægt að leita til lögreglu ef svefnfriði er raskað með hljóðum eða ljósum. Það er það helsta sem kvartað er yfir auk átroðningsins við mest skreyttu húsin.“