fbpx
Fimmtudagur 17.apríl 2025
Fréttir

Katrín í Lumex svarar lektornum – „Ef hún er með einhverja hefnd og grimmd þá má hún eiga hana. Ég á enga óvini“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. desember 2024 13:30

Katrín segir þetta aðeins hafa gerst í tvö skipti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Kristín Gunnarsdóttir, eigandi verslunarinnar Lumex við Skipholt, vísar gagnrýni lektorsins Auðar Magndísar Auðardóttur um vanvirðingu við fatlað fólk til föðurhúsanna. Hún segist aðeins hafa lagt bílnum við ramp fyrir fatlaða í tvö skipti og í stutta stund. Engin illgirni eða hefnd liggi þar að baki gagnvart nemendum Háskóla Íslands.

„Í morgun setti ég bílinn þarna fyrir framan af því að ég var að bera inn dót og það er allt og sumt. Hann var færður fimm mínútum seinna. Ég var með fullt fangið af dóti og það er glerhált fyrir framan,“ segir Katrín. Biðst hún innilega afsökunar á þessu.

Í umtalaðri færslu sem DV greindi frá í dag segir Auður Magndís, lektor við HÍ, að Katrín hafi ítrekað lagt í stæðið, líklega vegna þess að nemendur skólans hafi lagt fyrir framan verslun hennar, sem er við hliðina á skólanum. Sagði hún Katrínu ítrekað hafa lagt bílnum þarna í um ár og taldi fyrst hugsanaleysi um að kenna. Nú telur Auður Magndís að þetta sé gert í illgirni.

„Hún má segja það sem henni sýnist en það er ekki rétt,“ segir Katrín aðspurð um þessi orð Auðar. Það er hvort hún eigi einhverra harma að hefna gagnvart nemendum.

„Hefnd ekki til í mínum bókum“

Segist Katrín ekkert hafa heyrt í Auði Magndísi og biður hana að eiga orð við sig ef henni finnst þetta vera svona.

„Ég kann ekki svona vitleysu. Hefnd er ekki til í mínum bókum,“ segir Katrín. „Hér er ekki verið að borga fyrir eitt eða neitt. Við erum bara ekki á sömu línunni, hún og ég. Ef hún er með einhverja hefnd og grimmd þá má hún eiga hana. Ég á enga óvini.“

Sjá einnig:

Lektor bendir á yfirgengilega framkomu fyrirtækjaeigandi í Skipholti – „Hún er því miður að gera þetta af einhvers konar illgirni“

Eins og áður er sagt segist Katrín aðeins einu sinni hafa áður lagt bíl sínum á þessum stað.

„Ég er svo oft að sendast og gera og græja þá er þetta stysta leiðin inn. Sérstaklega þegar það er gler hérna fyrir utan. Þar sem enginn er í skólanum og hann er lokaður þá hugsaði ég að það gæti nú ekki skipt máli með fimm mínútur,“ segir hún að lokum.

Lögreglan hafi mætt

Það nýjasta í málinu er að Auður segir á samfélagsmiðlasíðu sinni að lögreglan hafi komið í dag og veitt Katrínu tiltal.

„Það verður gert í hvert sinn hér eftir því þetta er kolólöglegt,“ segir Auður Magndís. „Þetta er stöðubrot og það verður hringt í lögregluna í hvert sinn sem þetta gerist hér eftir. Hún kom í dag og ræddi við hana (og væntanlega sektaði) og bíllinn er kominn í stæði núna.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Hauki Ægi – Ákærður fyrir manndrápstilraun gegn sýrlenskum skutlara sem braut gegn dóttur kærustu hans

Dómur fallinn yfir Hauki Ægi – Ákærður fyrir manndrápstilraun gegn sýrlenskum skutlara sem braut gegn dóttur kærustu hans
Fréttir
Í gær

Maður á sjötugsaldri sparkaði í andlit lögreglumanns

Maður á sjötugsaldri sparkaði í andlit lögreglumanns
Fréttir
Í gær

Piltur sýknaður af nauðgun þrátt fyrir ósamræmi í framburði og þó að vitni hafi legið vakandi við hlið þeirra á meðan meint brot átti sér stað

Piltur sýknaður af nauðgun þrátt fyrir ósamræmi í framburði og þó að vitni hafi legið vakandi við hlið þeirra á meðan meint brot átti sér stað
Fréttir
Í gær

Draumaferðin breyttist í martröð – „Mikið svakalega er ég reið, sár og svekkt“

Draumaferðin breyttist í martröð – „Mikið svakalega er ég reið, sár og svekkt“