fbpx
Sunnudagur 09.febrúar 2025
Fréttir

BM Vallá og UNICEF á Íslandi undirrita samstarfssamning til þriggja ára

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. desember 2024 16:09

Meðfylgjandi er mynd af Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, og Önnu Báru Teitsdóttur, forstöðumanni markaðsmála hjá BM Vallá, fyrir utan skrifstofu UNICEF á Íslandi að Strandgötu 75 í Hafnarfirði. Þar hefur sérstakri „Hjálparhellu“ verið komið fyrir í stéttinni við innganginn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samningurinn hluti af samfélagssjóðnum Hjálparhella BM Vallá – Sérstök áhersla verður á verkefni UNICEF á Gaza. 

BM Vallá og UNICEF á Íslandi hafa skrifað undir styrktarsamning til næstu þriggja ára þar sem sérstök áhersla verður á verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í þágu barna á Gaza. Samningurinn, er hluti af samfélagssjóð fyrirtækisins, Hjálparhella BM Vallá – sem styður við margvísleg samfélagsverkefni á hverju ári. 

„Við erum þakklát fyrir það traust og þann stuðning BM Vallá sýnir UNICEF með þessari skuldbindingu. Fyrirtækið hefur sýnt það, ár eftir ár, að þau vilja gefa af sér þar sem þörfin er mest. Þriggja ára samstarf skiptir miklu máli á óvissutímum líkt og framundan eru hjá börnum á Gaza. Eins og öll börn sem búa við hrylling stríðs þurfa þau stuðning og vernd, en fyrst og fremst frið. Meðan árásir standa yfir þurfa þau neyðaraðstoð en við höldum ávallt í vonina um varanlegan frið og þá hefst áskorun uppbyggingar. Fyrirsjáanlegur stuðningur sem þessi við brýn verkefni til nánustu framtíðar er því dýrmætur,“  segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum og verkefnin sjaldan eða aldrei verið stærri en um þessar mundir. Síðastliðna fjórtán mánuði hafa börn á Gaza mátt upplifa nær fordæmalausa neyð þar sem hundruð þúsunda barna hafa neyðst til að flýja heimili sín og enginn staður er öruggur fyrir börn. UNCEF hefur gefið út að nær öll börn á Gaza, 1,1 milljón talsins, þurfi nú á vernd, stuðningi og mannúðaraðstoð að halda.  

Viðskiptavinir leggja sitt af mörkum 

BM Vallá hefur undanfarin ár stutt við margvísleg alþjóðleg verkefni UNICEF í krafti styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi en það væri ekki hægt án þeirra fjölmörgu viðskiptavina BM Vallá sem með viðskiptum sínum leggja sitt af mörkum til þessara góðu málefna, þar sem hlutfall af heildarveltu fyrirtækisins rennur í samfélagssjóð BM Vallá.

„Við hjá BM Vallá erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum til þess að styðja börn í neyð í gegnum samstarf við UNICEF á Íslandi. Samfélagssjóðurinn okkar, Hjálparhella BM Vallár, endurspeglar áherslur okkar í samfélagsábyrgð um að fyrirtæki geti gegnt mikilvægu hlutverki í að bæta lífsskilyrði þeirra sem minna mega sín. Að þessu sinni beinist stuðningur okkar að börnum á Gaza, sem þurfa á vernd, stuðningi og mannúðaraðstoð að halda í þeim skelfilegu aðstæðum sem þau búa við. Það er okkur bæði skylda en jafnframt heiður að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni með UNICEF. Tilurð samfélagssjóðsins væri ekki mögulegur nema væri fyrir stuðnings okkar tryggu viðskiptavina,“ segir Anna Bára Teitsdóttir, forstöðumaður markaðsmála hjá BM Vallá.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir ríkið víst eiga rétt á að krefja óskráða flokka um endurgreiðslu

Segir ríkið víst eiga rétt á að krefja óskráða flokka um endurgreiðslu
Fréttir
Í gær

Guðrún tekur slaginn við Áslaugu Örnu og Snorra

Guðrún tekur slaginn við Áslaugu Örnu og Snorra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta eru stærstu landeigendurnir á Íslandi

Þetta eru stærstu landeigendurnir á Íslandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ragnar lá ósjálfbjarga heima hjá sér í 8 klst. – Hvetur fólk í sömu stöðu til að fá sér öryggistæki

Ragnar lá ósjálfbjarga heima hjá sér í 8 klst. – Hvetur fólk í sömu stöðu til að fá sér öryggistæki
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Jóhann játar sök varðandi vörslu og dreifingu barnaníðsefnis – Svarar til saka 15. febrúar

Jóhann játar sök varðandi vörslu og dreifingu barnaníðsefnis – Svarar til saka 15. febrúar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur sneri við dómi úr héraði – Kennari fær skaðabætur eftir að hafa slasast við árás nemanda

Landsréttur sneri við dómi úr héraði – Kennari fær skaðabætur eftir að hafa slasast við árás nemanda