Henry Alexander, sem er fulltrúi í fagráði um dýravelferð, var í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í gær, en fréttastofan greindi frá því að nýtt veiðileyfi Hvals hf. endurnýist sjálfkrafa árlega og því geti það að óbreyttu verið í gildi í áraraðir og er ótímabundið.
Sagði Henry að þetta væru nýmæli í leyfinu en sambærilegt ákvæði um endurnýjun mun ekki hafa verið í fyrir leyfisveitingum. Sagði Henry að upplýsingarnar slái hann illa.
„Þetta er alveg með ólíkindum ef satt er. Vörn Bjarna byggðist öll á því þegar hann var gagnrýndur í fjölmiðlum að þetta væri allt hefðbundið, þetta væri bara það sama, þetta væri augljóst og hefði alltaf gerst hvort sem var,“ sagði hann í fréttum Stöðvar 2.
Vilhjálmur segir að Henry sé ekki hlutlaus og hann hafi verið einn harðasti andstæðingur hvalveiða sem fyrirfinnst á Íslandi.
„En hann á að vera hlutlaus enda situr hann í þessu blessaða „fagráði“ sem skilaði inn áliti til Svandísar Svavarsdóttur fyrrverandi matvælaráðherra. En hún byggði sína niðurstöðu við banni við hvalveiðum á árinu 2023 á áliti frá þessu fagráði og nú geta menn og konur velt því fyrir sér hvort þessi aðili í fagráðinu hafi verið hlutlaus við gerð álitsins,“ segir Vilhjálmur sem virðist ekki vera í neinu jólaskapi þó aðeins sex dagar séu þar til jólin ganga í garð.
„Henry Alexander er svo gjörsamlega vanhæfur sem fulltrúi í þessu svokallaða „fagráði“ að [annað eins vanhæfi] hefur ekki sést enda harðasti andstæðingur hvalveiða á Íslandi.“
Fjölmargir skjólstæðingar Vilhjálms eru hjá stéttarfélagi hans og kveðst Vilhjálmur fagna því innilega að búið sé að eyða óvissu með afkomu 200 fjölskyldna vegna komandi vertíðar. Hún muni skila þjóðarbúinu nokkrum milljörðum í útflutningstekjur.
„Frá árinu 2010 hafa hvalveiðar skilað 21 milljarði núvirt í útflutningstekjur en stór hluti þeirra tekna verður eftir hér á Akranesi og nærsamfélögum. Nú þarf að auka verðmætasköpun í íslensku samfélagi og ekki veitir af því án gjaldeyrisskapandi atvinnugreina munum við ekki ná að auka og viðhalda velferð hér á landi!“