Það er óhætt að segja að refsiaðgerðir Vesturlanda gegn rússneska orkuiðnaðinum hafi klikkað því hvítþvegin rússnesk olía streymir til Evrópu í gegnum Indland.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá hugveitunni Center for the Study of Democracy. Þar kemur fram að Indverjar nýti sér gloppur í refsiaðgerðunum og nú séu Indverjar stærstu kaupendur rússneskrar olíu. Á fyrstu átta mánuðum ársins keyptu þeir rússneska olíu fyrir 27 milljarða evra en það er 13% meira en á sama tíma 2023.
Ekki nóg með það, því Evrópubúar greiða hærra verð fyrir olíuna frá þremur stærstu indversku olíuhreinsistöðvunum nú en á síðasta ári.
Indland hefur tekið stöðu Sádi-Arabíu sem stærsti seljandi eldsneytis til Evrópu. Það sem af er ári hefur ESB flutt 13% af dísilolíu sinni og flugvélaeldsneyti frá Indlandi.
Á fyrstu þremur ársfjórðungum 2024 jukust kaup ESB á olíuvörum frá þremur stærstu olíuhreinsistöðvunum um 58%. Það er þó ekki hægt að slá því föstu hversu mikið af „indversku olíunni“ er frá Rússlandi.
Hugveitan segir að ESB verði að banna innflutning á olíuvörum frá olíuhreinsistöðvum í þriðju ríkum á borð við Indland, Tyrkland og Sameinuðu Arabísku Furstadæmin því þær kaup rússneska olíu og selji til ESB.