fbpx
Þriðjudagur 17.desember 2024
Fréttir

Dómur gegn leigubílstjóra sem braut gegn framhaldsskólastúlku mildaður verulega

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 17. desember 2024 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur hefur mildað fangelsisdóm yfir leigubílstjóranum Abdul Habib Kohi fyrir kynferðisbrot gegn 17 ára farþega, úr tveggja ára fangelsi niður í 12 mánaða fangelsi.

Atvikið átti sér stað haustið 2022. Samkvæmt framburði stúlkunnar sem rakinn var í dómi héraðsdóms leitaði hún ásjár bílstjórans í Lækjargötu en hún var þá illa til reika og veik. Hafði hún orðið viðskila við vini sína og týnt bæði síma og veski. Bílstjórinn bauðst, að hennar sögn, til að aka henni heim til hennar í Reykjanesbæ. Hann var síðan sakaður um að hafa brotið gegn stúlkunni í bílnum með eftirfarandi hætti:

„Ákærði er ákærður fyrir nauðgun, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 25. september 2022, í leigubifreiðinni […], sem ákærði ók frá miðborg Reykjavíkur til […],
án samþykkis og með því að beita ólögmætri nauðung, haft önnur kynferðismök við brotaþola, sem var farþegi í bifreiðinni, en ákærði kyssti brotaþola nokkrum sinnum á munninn, þuklaði á brjóstum hennar innan- og utanklæða, þuklaði á kynfærum hennar utanklæða og nuddaði kynfæri hennar innanklæða. Í ákæru er háttsemi ákærða talin varða við 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

Samkvæmt lagaákvæðum gerist sá sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við aðra manneskju án samþykkis sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi frá einu til 16 ára.

Var í miklu uppnámi

Í skýrslu lögreglu um málið segir að stúlkan hafi virst vera í miklu tilfinningalegu uppnámi. Fljótlega eftir að málið hafði verið tilkynnt til lögreglu var Abdul stöðvaður á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Stúlkan fór á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis í Fossvogi en Abdul var fluttur á lögreglustöð.

Læknir og hjúkrunarfræðingur á neyðarmóttökunni lýsa því að stúlkan hafi verið í miklu uppnámi og grátið. Einnig kom fram hjá lækninum að brotaþoli hefði sagt einlæglega frá þegar hún lýsti atvikum en verið í sjokki, grátið og hniprað sig saman og nuddað höndunum saman allt viðtalið. Stúlkan hafi greinilega verið í áfalli.

Lífsýni á stýri og gírstöng

Maðurinn neitaði sök og sagðist hafa aðeins hafa snert stúlkuna til að aðstoða hana en hún var veik og kastaði upp út um glugga bílsins. Framhurður hans þótti hins vegar ótrúverðugur auk þess sem ósamræmi var á milli þess sem hann sagði fyrir dómi og í yfirheyrslu lögreglu rétt eftir handtöku. Við lögreglu sagði hann t.d. að stúlkan hefði litið út fyrir að vera 16-17 ára en fyrir dómi sagði hann að hún hefði litið út fyrir að vera um 19 ára.

Lífsýni úr stúlkunni fundust á manninum en einnig á stýri og gírstöng bílsins. Vógu þau atriði þungt enda var maðurinn ekki talinn gefa sannfærandi skýringar á þessu atriði.

Í niðurstöðu héraðsdóms segir meðal annars:

„Ekkert er fram komið sem bendir til þess að brotaþoli hafi samþykkt þá háttsemi sem ákærði er talinn hafa gerst sekur um og er heldur ekki á því byggt af hálfu ákærða. Þá verður í ljósi aðstæðna fallist á að mökin séu fengin fram með ólögmætri nauðung á grundvelli yfirburða og aðstæðna. Er þá, auk þess sem að framan greinir um líðan brotaþola, vísað til þess að hún átti erfitt með að halda sér vakandi og að ákærði, sem ökumaður bifreiðarinnar, stýrði alfarið ferðum hennar og nýtti sér það traust sem hún bar til hans sem leigubifreiðastjóra.“

Landsréttur telur snertingu við kynfæri innanklæða ósannaða

Landsréttur taldi framburð stúlkunnar í málinu vera með þeim hætti að ekki væri að fullu sannað að Abdul hefði snert kynfæri hennar innanklæða. Hann taldi hann hins vegar sekan um aðra háttsemi sem hann er sakaður um í ákæru.

Þetta leiddi til þess að refsing hans er lækkuð úr tveggja ára fangelsi niður í eins árs fangelsi.

Hann þarf eftir sem áður að greiða stúlkunni 1,8 milljónir króna í miskabætur, sem var niðurstaða héraðsdóms.

Dóma Landsréttar og héraðsdóms í málinu má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Nína Gautadóttir er látin

Nína Gautadóttir er látin
Fréttir
Í gær

Þingmaður segir að bandarísk yfirvöld viti nákvæmlega hvað er í gangi en þori ekki að segja almenningi frá því

Þingmaður segir að bandarísk yfirvöld viti nákvæmlega hvað er í gangi en þori ekki að segja almenningi frá því
Fréttir
Í gær

Sagt upp á jólunum

Sagt upp á jólunum
Fréttir
Í gær

Skiptar skoðanir á Bíladögum á Akureyri – Karlar mun jákvæðari en konur

Skiptar skoðanir á Bíladögum á Akureyri – Karlar mun jákvæðari en konur