Það er sérlega jólalegt um að litast í fjórum verslunum Bónus, Holtagörðum, Smáratorgi, Miðhrauni og Norðurtorgi á Akureyri, þessa dagana þar sem sérstök jólastemning sem kallast Jólabónus er í gangi nú fyrir hátíðarnar.
Búðirnar eru mikið og fallega skreyttar og boðið er upp á allskonar uppákomur sem tengjast jólum eins og vörukynningar, hátíðlega drykki og ristaðar möndlur sem og jólasveina á vappi á ákveðnum tímum til að gera jólastemninguna enn meiri, eins og segir í tilkynningu.
,,Jólabónus er hugmynd sem kviknaði hjá okkur fyrir þessi jól. Við viljum gleðja þau sem koma hingað í Bónus og þá sérstaklega börnin og auðvitað foreldrana í leiðinni með alls konar gómsætu smakki og skemmtilegum viðburðum tengdum jólunum. Með þessu bjóðum við fólki upp á að gera hagkvæm jólainnkaup og njóta jólastemningar í leiðinni. Ef þetta mælist vel fyrir hjá viðskiptavinum okkar og gengur vel þá myndi ég vilja sjá þetta verða að veruleika í fleiri verslunum okkar fyrir næstu jól,“ segir Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus.