fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Fréttir

Verslunarstjóri ákærður fyrir nauðgun á fötluðum undirmanni sínum og tveimur andlega fötluðum ungmennum

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. desember 2024 13:30

Héraðsdómur Reykjavíkur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunarstjóri á miðjum aldri sem búsettur á Akranesi er ákærður fyrir að hafa um fimm ára skeið nýtt sér andlega fötlun afgreiðslukonu í versluninni til að hafa við hana ítrekuð kynmök. Og láta fjóra aðra menn sem hann kynntist á netinu gera slíkt hið sama, þeir menn eru ekki ákærðir. Maðurinn er einnig ákærður fyrir brot gegn andlega fötluðum unglingssyni konunnar og vinkonu hans.

RÚV greindi frá málinu, en þriggja daga aðalmeðferð hófst í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. 

Í ákæru kemur fram að brotin munu hafa verið framin á árunum 2016 til 2020, alltaf á heimili konunnar og sonar hennar í Reykjavík. Verslunarstjórinn, yfirmaður konunnar, hafi komið nokkrum sinnum í mánuði í heimsókn og brotið gegn mæðginunum.

„Ákærði notfærði sér að [konan] gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar og beitti hana ólögmætri nauðung með því að nýta sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart henni og traust hennar til [hans] vegna stöðu hans gagnvart henni, meðal annars sem yfirmanns hennar, og misnotaði freklega þá aðstöðu sína að [konan] var honum háð í atvinnu sinni en ákærði var verslunarstjóri í [verslun] þar sem [konan] starfaði við afgreiðslu.“

RÚV uppfærði frétt sína nú í kvöld og DV hefur sömu upplýsingar eftir heimildarmanni:

Maðurinn er giftur og á börn og barnabörn. Brotin voru framin þegar hann var verslunarstjóri í stórri matvörubúð í Reykjavík og hafði hann þá gegnt því starfi í fjölda ára. Þegar lögregla hafði samband við stjórnendur fyrirtækisins vegna rannsóknar málsins var honum sagt upp samdægurs. Fljótlega var hann kominn í vinnu sem verslunarstjóri stórrar byggingavöruverslunar en hefur síðan verið látinn fara þaðan líka.

Maðurinn svaraði meðal annars upplýsingum um auglýst störf hjá fyrirtækjunum báðum í starfi sínu sem verslunarstjóri. Og kom fram undir nafni í kynningum annars þeirra.

Braut einnig gegn andlega fötluðum syni konunnar

Maðurinn er jafnframt ákærður fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum gegn unglingssyni konunnar, sem einnig er andlega fatlaður. Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi í  eitt skipti látið soninn vera viðstaddan þegar maðurinn hafði samræði og munnmök við konuna, „undir því yfirskyni að [sonurinn] ætti að læra að stunda kynlíf“.

Maðurinn er einnig ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn syninum með því að spyrja hann ítrekað á árunum 2016 til 2020 um kynlíf hans og gefa honum leiðbeiningar um hvernig hann skyldi stunda kynlíf.

Vildi kenna fötluðum drengnum og kærustu hans hvernig þau ættu að stunda kynlíf

Maðurinn er einnig ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn syninum og vinkonu hans með því að hafa, á milli jóla og nýárs 2020, farið inn í herbergi til þeirra þar sem þau voru að stunda kynlíf á bak við luktar dyr, „farið upp að [vinkonunni] þar sem hún lá nakin í rúminu og fært hendi sína mjög nálægt kynfærum [hennar] og gefið [syninum] leiðbeiningar um hvernig hann ætti að veita [vinkonunni] munnmök en ákærði notfærði sér að þau gátu ekki spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar.“

Í ákærunni kemur ekki fram hversu gamall sonur konunnar og vinkona hans voru þegar maðurinn braut gegn þeim. RÚV segir að ráða megi af ákærunni að sonurinn hafi orðið fimmtán ára um mitt ár 2018, þar sem saksóknari segi að brotin hætti þá að varða við 202. grein almennra hegningarlaga, sem meðal annars kveður á um kynferðislega áreitni gegn barni yngra en fimmtán ára, og byrji í staðinn að varða við barnaverndarlög, sem fjalla um öll börn undir átján ára aldri.

Krefjast samtals ellefu milljóna í bætur

Konan fer fram á fimm milljónir króna í bætur úr hendi mannsins, sonur hennar krefst fjögurra milljóna og kærasta hans tveggja milljóna.

Hinir mennirnir ekki ákærðir

Í ákæru eru tiltekin fjögur tilvik þar sem maðurinn lét aðra karlmenn koma á heimili konunnar og hafa þar mök við hana ásamt honum, og enn eitt skipti þar sem hann hvatti mann til þess sem ekki virðist hafa mætt. 

Kynntist maðurinn einhverjum hinna mannanna í gegnum tiltekna vefsíðu, en nafn hennar er  afmáð úr ákæruskjali sem fjölmiðlar fá afrit af. RÚV segir að nöfn mannanna fjögurra, þar af þrír þeirra sem eru ákærðir fyrir að hafa mök við konuna, séu í ákærunni, þótt nöfnin hafi verið afmáð úr skjalinu.

RÚV spurði Þorbjörgu Sveinsdóttur saksóknara hvers vegna hinir mennirnir væru ekki líka ákærðir í málinu, og segir hana hafa svarað því til að þinghaldið væri lokað og að hún gæti því engar upplýsingar veitt.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Ökukennari segir illa komið fram við eldri ökumenn: „Að mínu mati al­gjör­lega út í hött“

Ökukennari segir illa komið fram við eldri ökumenn: „Að mínu mati al­gjör­lega út í hött“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Illugi ómyrkur í máli – „Þetta var Hitlers-kveðja og ekkert annað“

Illugi ómyrkur í máli – „Þetta var Hitlers-kveðja og ekkert annað“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Guðmundur segir að ósanngjörn umfjöllun RÚV um Trump geti skaðað samskipti við Bandaríkjamenn – „Þessu verður að linna“

Guðmundur segir að ósanngjörn umfjöllun RÚV um Trump geti skaðað samskipti við Bandaríkjamenn – „Þessu verður að linna“
Fréttir
Í gær

Kæru vegna sjókvíaeldis í Seyðisfirði vísað frá

Kæru vegna sjókvíaeldis í Seyðisfirði vísað frá
Fréttir
Í gær

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello
Fréttir
Í gær

Maður á sextugsaldri misþyrmdi lögreglumanni í Þarabakka

Maður á sextugsaldri misþyrmdi lögreglumanni í Þarabakka
Fréttir
Í gær

Guðmunda þekkir það vel að vera aftast í röðinni og gleymast – „Ég lifi það ekki af að bíða svo lengi, henni varð á að hlæja“

Guðmunda þekkir það vel að vera aftast í röðinni og gleymast – „Ég lifi það ekki af að bíða svo lengi, henni varð á að hlæja“
Fréttir
Í gær

Dóri DNA segist með Mosfellsbæ á heilanum – „Þarna er hugsað stórt og ég elska þegar það er hugsað stórt“

Dóri DNA segist með Mosfellsbæ á heilanum – „Þarna er hugsað stórt og ég elska þegar það er hugsað stórt“