Viðræður flokkanna þriggja eru sagðar ganga prýðilega og segir hinn ónafngreindi heimildarmaður að viðræðurnar muni að öllum líkindum klárast fyrir jól. Því gæti farið svo að ný ríkisstjórn taki við völdum innan tveggja vikna.
Blaðið hefur heimildarmanni sínum að engar óyfirstíganlegar hindranir hafi orðið á vegi þeirra Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland. Búist er við því að þær þrjár hittist í dag til að halda viðræðunum áfram en þær tóku sér langþráð frí í gær.
Hefur blaðið eftir heimildarmanni sínum að „góður andi og traust“ ríki í viðræðunum og engar blikur á lofti. Þó sé talsverð vinna eftir við að koma saman stjórnarsáttmála eins og gengur og því líklegt að sú vinna taki einhverja daga.