Ýmsum kenningum hefur verið fleygt fram um og hafa sumir viljað meina að háleynilegu vopni erlends óvinaríkis hafi verið beitt – vopni sem sendir frá sér geislun eða rafsegulorku. Aðrir hafa haldið því fram að um einhvers konar móðursýki sé að ræða.
Nú hefur undirnefnd Bandaríkjaþings birt skýrslu um málið þar sem fram kemur að „það virðist æ meira líklegt“ að erlendur óvinur hafi verið á bak við sum tilfellin að minnsta kosti.
Fyrst fór að bera á hinum dularfullu veikindum árið 2016 hjá bandarískum stjórnarerindrekum á Kúbu. Þá skýrðu nokkrir starfsmenn þar frá því að þeir hefðu heyrt dularfull hljóð og hefðu í kjölfarið glímt við mígreni, svima, ógleði og minnistap.
Síðan þá hafa meira en 1.500 bandarískir embættismenn víðs vegar um heiminn tilkynnt um einkenni eins og viðvarandi svima, ógleði og jafnvægisvanda.
Það var Rick Crawford, þingmaður frá Arkansas, sem leiddi hópinn sem vann skýrsluna en í henni er sjónum beint að ríkjum eins og Kína, Kúbu og Rússlandi. Þá eru bæði FBI og CIA gagnrýnd harðlega fyrir að hafa ekki tekið málið alvarlega og rannsakað það til hlítar. Auk þess hafi bandaríska leyniþjónustan reynt að hamla því að nefndin gæti farið í saumana á málinu.
CIA birti sína skýrslu um málið fyrr á þessu ári þar sem fram kom að ólíklegt væri að erlent óvinaríki hafi verið að verki. Þá voru gerðar ítarlegar rannsóknir á rúmlega 80 einstaklingum sem glímdu við einkenni en þær bentu ekki til þess að fólkið hefði orðið fyrir heilaskaða.
Segir í skýrslu undirnefndar Bandaríkjaþings að vonast sé til þess að hægt verði að halda áfram rannsókn á málinu þegar ný ríkisstjórn tekur við á nýju ári.
Sem fyrr segir hafa veikindin ekki verið einskorðuð við Kúbu og hafa bandarískir erindrekar í ríkjum eins og Austurríki, Kína, Kólumbíu, Georgíu, Þýskalandi, Indlandi, Póllandi, Rússlandi og Víetnam tilkynnt um einkenni. Í sumum tilfellum hafa fjölskyldumeðlimir þessara einstaklinga upplifað sömu einkenni.