fbpx
Fimmtudagur 05.desember 2024
Fréttir

Björn: Ekki endilega best að minnka greiðslubyrðina þegar vextir lækka – Svona geturðu stytt lánið um allt að helming

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. desember 2024 16:30

Björn Berg veit hvað hann syngur þegar kemur að frumskógi húsnæðislánamarkaðarins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Vænkast hagur okkar til lengri tíma litið helst með lægri greiðslum í dag eða gætu vaxtalækkanir reynst enn verðmætari ef þær eru nýttar til að greiða lánin hraðar niður?“ Þessari spurningu varpar fjármálaráðgjafinn og fyrirlesarinn Björn Berg Gunnarsson fram í aðsendri grein á viðskiptasíðum Morgunblaðsins í dag.

Þar gerir hann vaxtaumhverfið á Íslandi að umtalsefni og lækkunarferli stýrivaxta sem er hafið. Stýrivextir hafa lækkað um 0,75% í tveimur skrefum og bendir Björn Berg á að nú sé beðið eftir næstu lækkun þann 5. febrúar næstkomandi.

„Eðlilega hafa margir leitað leiða til að létta greiðslubyrðina að undanförnu. Einhverjir færðu sig yfir í verðtryggð lán, lengdu líftíma þeirra, fóru úr jöfnum afborgunum í jafnar greiðslur eða festu vextina. En þeir sem héldu sig á breytilegum óverðtryggðum vöxtum sjá nú bærilegri reikninga berast inn um lúguna. Þá lækka vextir af bílalánum, yfirdrætti og mörgum öðrum neyslulánum sömuleiðis. Rekstur heimilisins ætti að öðru óbreyttu að batna,“ segir Björn sem bendir á að lægri mánaðarlegar greiðslur gefi okkur svigrúm til að mæta öðrum útgjöldum og laga okkur að hærra verðlagi í landinu.

Hvað með að leyfa sér að hugsa lengra?

„En hvað með að leyfa sér að hugsa aðeins lengra en fram yfir næstu mánaðamót? Vænkast hagur okkar til lengri tíma litið helst með lægri greiðslum í dag eða gætu vaxtalækkanir reynst enn verðmætari ef þær eru nýttar til að greiða lánin hraðar niður,“ spyr Björn.

Hann segir að fjárhagsleg markmið okkar flestra séu keimlík og öll viljum við hafa það þokkalegt, geta leyft okkur eitthvað skemmtilegt og það án þess að vera með hnút í maganum um hver mánaðamót.

„En við viljum líka að slíkt verði varanlegt. Ef það er á annað borð raunhæft gæti ein besta leiðin til að ná þeim markmiðum verið að halda óbreyttri greiðslubyrði, þrátt fyrir vaxtalækkanir,“ segir Björn sem tekur dæmi af íbúðaláni fjölskyldu.

„Óverðtryggt jafngreiðslulán hjóna stendur í 40 m.kr. Lánið er til 30 ára og bar þegar mest lét 11% vexti. Þá var greiðslubyrðin 381 þ.kr. á mánuði. Við hverja vaxtalækkun verður heimilisreksturinn vissulega bærilegri, en ef þau ráða við óbreytta greiðslubyrði fer viðbótargreiðsla hvers mánaðar beint inn á höfuðstól lánsins. Það er einmitt galdurinn við að greiða niður lán svo vel takist til. Greiðum sem mest á lánið sjálft og sem minnst í kostnað. Þegar markmiðið er að lágmarka greiðslubyrði er því miður yfirleitt allt of lítið greitt af höfuðstól,“ segir Björn.

Hann segir síðan að þegar vextirnir voru 11% hafi aðeins 14 þúsund krónur af 381 þúsund króna greiðslum hjóna farið inn á höfuðstól lánsins. „Séu vextirnir nú 10,25% er hægt að bæta 23 þ.kr. við og hvað gerist þá? Að óbreyttu styttist lánið úr 30 árum í rúm 22, eða um fjórðung. Ég geri ekki lítið úr því hve nauðsynleg vaxtalækkunin hefði getað verið til að létta heimilisreksturinn, en það má ekki líta fram hjá þessum merkilegu áhrifum viðbótargreiðslu á höfuðstól lánsins.“

Litlar fjárhæðir geta haft mikil áhrif

Björn birtir svo með grein sinni mynd sem sýnir hvernig stytta má lán með viðbótargreiðslu. Þá sjást áhrif þess að hætta til dæmis við algengustu áskriftir í Lottó og Víkingalottóinu (12.200 krónur á viku) og greiða þess í stað inn á lánið.

„Í ljós kemur að bjóðist 8,5% vextir (sem nú þegar bjóðast með bindingu) og sé lottóáskriftinni sagt upp má stytta lánið um helming. Auðveldara verður að stækka við sig síðar vegna meiri eignamyndunar og svigrúm verður til fjárfestinga eða meiri einkaneyslu. Ákvarðanir á borð við þessar, greiðslu viðbótarlífeyris inn á lán og uppgreiðslu neyslulána, geta haft afgerandi áhrif á fjárhagslega framtíð okkar og geta litlar fjárhæðir jafnvel haft meiriháttar áhrif til lengri tíma litið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Enn einu gjaldþrotinu hjá Birni Inga lokið

Enn einu gjaldþrotinu hjá Birni Inga lokið
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Viktoría var skilin eftir allslaus í flugstöðinni í Tbilisi – „Hún er peningalaus og kortalaus. Hrædd, kvíðin og ráðþrota“

Viktoría var skilin eftir allslaus í flugstöðinni í Tbilisi – „Hún er peningalaus og kortalaus. Hrædd, kvíðin og ráðþrota“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Segir rússneska herinn vera eins og „hjólaskóflu“

Segir rússneska herinn vera eins og „hjólaskóflu“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segir að Úkraína hafi þörf fyrir skotfæri en ekki friðarferli

Segir að Úkraína hafi þörf fyrir skotfæri en ekki friðarferli
Fréttir
Í gær

Stjórnarmyndunarviðræður hefjast á morgun – „Valkyrjurnar eru komnar til að sjá og sigra“

Stjórnarmyndunarviðræður hefjast á morgun – „Valkyrjurnar eru komnar til að sjá og sigra“
Fréttir
Í gær

„Enginn á að vera hryggur um jólin“

„Enginn á að vera hryggur um jólin“