Fyrstu viðvaranir taka gildi klukkan 14 i dag á Suðurlandi og Faxaflóa og eru þær í gildi á þeim svæðum til miðnættis. Búast má við skafrenningi og lélegum akstursskilyrðum og gæti færð spillst, einkum á fjallvegum.
Höfuðborgarsvæðið verður ekki undan skilið en þar tekur viðvörun gildi klukkan 18 í dag og er hún í gildi til klukkan 23. Búast má við skafrenningi og gæti færð spillst, einkum í efri byggðum.
Lögreglan á Suðurnesjum hvetur vegfarendur til að fara að öllu með gát í færslu sem birtist á Facebook-síðu hennar í gærkvöldi.
„Sáuð þið spána fyrir morgundaginn? Stutt og laggott…….skítaspá bara. Gæti snjóað allverulega seinnipartinn ásamt því sem Kári ætlar að blása hraustlega á okkur og gæti það skapað ansi krefjandi aðstæður á brautinni og víðar. Biðjum alla Kára að blása bara upp í loftið á morgun,“ sagði í færslunni.
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni kemur fram að mjög kalt hafi verið á landinu í nótt og fór frost niður fyrir -20 á nokkrum stöðvum á Norðausturlandi. Austur af hvarfi sé svo vaxandi lægð og nálgast skil hennar landið með tilheyrandi leiðindum síðar í dag.
„Það fer að snjóa frá þeim suðvestan til seinni partinn og í kvöld er spáð suðaustan hvassviðri eða stormi með snjókomu, slyddu eða rigningu á Suður- og Vesturlandi. Gular viðvaranir vegna hríðar hafa verið gefnar út. Vegfarendum er bent á að fylgjast með veðurspám og fréttum af færð. Mun hægari vindur norðan- og austanlands, þurrt og kalt veður. Í nótt og á morgun hreyfast skilin austur yfir land og það lægir í kjölfar þeirra. Skúrir eða él á víð og dreif á morgun, en rigning eða slydda fyrir austan fram eftir degi,“ segir veðurfræðingur á vef Veðurstofu Íslands.