fbpx
Mánudagur 02.desember 2024
Fréttir

Hún er fundin! – Leynidóttir Pútíns er í París

Ritstjórn DV
Mánudaginn 2. desember 2024 07:00

Luiza Rozova

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er margt sem ekki er vitað um unga konu að nafni Luiza Rozova, sem gengur einnig undir nafninu Elizaveta Krivonogikh. Hún komst fyrst í kastljós fjölmiðla fyrir fjórum árum, þegar hún var 17 ára, þegar rannsóknarblaðamenn hins óháða rússneska miðils Proekt fóru að sýna henni áhuga.

Móðir hennar, Svetlana Krivonogik er ein auðugasta kona Rússlands og talið er að faðir Luiza sé enginn annar en Vladímír Pútín Rússlandsforseti.

Svetlana var ósköp venjulega kona sem framfleytti sér með þrifum. Proekt segir að hún hafi kynnst Pútín í lok tíunda áratugarins og verið ástkona hans í nokkur ár.

Svetlana eignaðist dóttur í byrjun mars 2003 en rússneskir fjölmiðlar hafa ekki skýrt frá nafni föðursins en talið er að það sé Pútín. Það styrkir þessar grunsemdir að millinafn hennar er Vladimirovna sem er talið vera bein tilvísun til föður hennar.

En það hefur aldrei verið staðfest opinberlega að hún sé dóttir Pútíns en það hefur ekki komið í veg fyrir að orðrómar hafi verið á kreiki um faðerni hennar og hún hefur ekki gleymst.

Úkraínski miðillinn TSN segir að Luiza hafi horfið algjörlega af samfélagsmiðlum og nánast af yfirborði jarðar skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022.

TSN segir að hún hafi lagt stund á nám í ICART skólanum í París en ekki liggur fyrir hvort hún er enn við nám þar. Miðillinn segir einnig að Luiza og Svetlana notist nú við eftirnafnið Rudnova. „Eftir umfangsmikla rannsókn komst TSN að því að Luiza hefur nú breytt eftirnafni sínu í Rudnova og þar með líklega tekið eftirnafn Oleg Rudnov, sem er náinn bandamaður Pútíns, sem stundaði eitt sinn viðskipti með lúxusfasteignir,“ segir í umfjöllun TSN. Er hún nú sögð kalla sig Elizaveta Olegovna Rudnova.

Opinberlega er vitað að Pútín á tvær dætur, Katerina og Maria, með fyrrum eiginkonu sinni, Ljudmila Putina, en þau skildu 2013.

Hann er einnig sagður eiga tvo syni með fimleikakonunni Alina Kabajeva.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Lenya lýsir yfir miklum vonbrigðum og er óviss með framtíðina

Lenya lýsir yfir miklum vonbrigðum og er óviss með framtíðina
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ragnar Þór segir frá fátækum manni með krabbamein sem óskaði eftir húsbíl Flokks fólksins

Ragnar Þór segir frá fátækum manni með krabbamein sem óskaði eftir húsbíl Flokks fólksins
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sanna gefst ekki upp – „Langhlaup að berjast gegn auðvaldsskipulaginu sem ræður hér ríkjum“

Sanna gefst ekki upp – „Langhlaup að berjast gegn auðvaldsskipulaginu sem ræður hér ríkjum“
Fréttir
Í gær

Meintur albanskur fíkniefnasali fordæmir vinnubrögð lögreglunnar -„Það átti að dæma mig án þess að ég vissi af því“

Meintur albanskur fíkniefnasali fordæmir vinnubrögð lögreglunnar -„Það átti að dæma mig án þess að ég vissi af því“
Fréttir
Í gær

Gestum á kosningavöku Sósíalista brugðið þegar lögregla mætti á svæðið

Gestum á kosningavöku Sósíalista brugðið þegar lögregla mætti á svæðið
Fréttir
Í gær

Sigmundur Davíð vinsæll hjá börnunum – „Aldrei lækka kosningaaldurinn“

Sigmundur Davíð vinsæll hjá börnunum – „Aldrei lækka kosningaaldurinn“
Fréttir
Í gær

Leitin að Geirfinni: Fór ekki til fundar við mann í Hafnarbúðinni og „Leirfinnur“ hringdi ekki í hann

Leitin að Geirfinni: Fór ekki til fundar við mann í Hafnarbúðinni og „Leirfinnur“ hringdi ekki í hann
Fréttir
Í gær

Móðir Gunnars Smára þurfti að niðurlægja sig fyrir framan fulltrúa Sjálfstæðisflokksins – „Fátækt er harmur“

Móðir Gunnars Smára þurfti að niðurlægja sig fyrir framan fulltrúa Sjálfstæðisflokksins – „Fátækt er harmur“