Óprúttinn aðili keyrði inn á gróin svæði á lóð Síldarvinnslunnar í Neskaupstað í nótt og spændi upp grasið. Einnig á íþróttasvæði bæjarins en þar voru skemmdirnar ekki jafn miklar. Verksmiðjustjóri segist hafa fengið ábendingar um hver gæti hafa verið að verki eftir skoðun myndavéla. Biður hann viðkomandi að gefa sig fram ellegar verði hringt á lögregluna innan nokkurra klukkustunda.
Austurfrétt greindi fyrst frá málinu.
Starfsfólki Síldarvinnslunnar brá í brún þegar það mætti og sá ófögnuðinn sem unninn hafði verið á lóðinni. Gróið grasið tætt upp og í staðinn var drullusvað.
Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri, segir að unnið hafi verið að því að gera svæðið snyrtilegt. Þess vegna svíði þetta enn þá meira.
Bíllinn keyrði einnig inn á svæði íþróttavallarins en þar var eyðileggingin ekki nærri því jafn mikil og segja forsvarsmenn vallarins að ekki verði aðhafst meira í málinu að þeirra hálfu. Í eftirlitsmyndavélakerfi sást bíllinn keyra inn á völlinn. Hafa fram komið ábendingar um hver gæti hafa verið að verki.
Í samtali við DV segir Hafþór að ekki sé enn þá búið að hringja á lögregluna og kæra málið. En það verði gert gefi viðkomandi sig ekki fram. „Við gefum þessu nokkra klukkutíma,“ segir Hafþór.