fbpx
Þriðjudagur 24.desember 2024
Fréttir

Gunnar Smári hundfúll eftir úthlutun fjölmiðlastyrkjanna – „Þetta er í raun brandari, frekar steiktur“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. nóvember 2024 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, er ósáttur við úthlutun ríkisins á rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Hann bendir á að úthlutunarkerfið sé óréttlátt og hygli stórum og rótgrónum miðlum á kostnað minni miðla.

Gunnar Smári skrifar á Facebook:

„Ég veit ekki með þessa meðferð á almannafé. Til hvers er verið að gefa útgerðinni 123 milljónir til að halda úti Mogga eða bröskurunum sem eiga Viðskiptablaðið 40 milljónir, menn sem reka starfsmannaleigur? Af þessu fé fer 78% í það sem kalla má almenna fjölmiðlun, það er ekki byggðablöð eða tímarit/vefur um séráhuga. Og af því sem fer í almenna fjölmiðlun rennur 3/4 til auðfólks sem keypt hefur fjölmiðla til að stýra umræðunni á Íslandi. Er það virkilega aðkallandi verkefni, að styðja auðfólk til að hafa enn meiri áhrif á samfélagið?

Samstöðin fær þarna lítinn styrk, um 5% af því sem Mogginn fær og um 15% af því sem Viðskiptablaðið fær. Þetta er í raun brandari, frekar steiktur.“

Gunnar bætir við í athugasemd að hann hafi heimsótt menningarmálaráðuneytið í sumar. Þar benti hann á að úthlutunarkerfi styrkjanna sé óréttlátt. Það hygli stóru fjölmiðlunum og virki í raun sem aðgangshindrun fyrir nýja og minni miðla. Útgefandi Morgunblaðsins, Árvakur, fái endurgreiddan kostnað upp á um það bil fjórðung af ritstjórnarkostnaði næsta árs. Samstöðin, sem fékk í sinn hlut tæpar 6,4 milljónir fái bara endurgreiddan um 6 prósent af ritstjórnarkostnaði. Ástæðan fyrir þessu er að styrkur fyrir næsta ár taki mið af kostnaði ársins áður. „Það hentar fjölmiðlum í hægri en öruggri hrörnun en alls ekki fjölmiðlum sem vaxa hratta vegna þess hversu vel fólk tekur við þeim. Líklega voru lögin samin á skrifstofu Árvakurs. Miðað við fyrirsjáanlega veltu á næsta ári ætti Samstöðin að fá 25 milljónir en ekki sex.“

Gunnar vakti líka athygli á málinu inni á Facebook-hóp Sósíalistaflokks Íslands að aðalmarkmið stjórnvalda sé að styrkja útgerðina á bak við Morgunblaðið. „Nei, sko. Samstöðin fær styrk eins og aðrir fjölmiðlar frá ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. En bara 5% af því sem Mogginn fær. Aðalmarkmið stjórnvalda er að styrkja grey útgerðina sem gefur út Moggann. Hún styður líka stjórnina. Og stjórnin styður útgerðina.“

Í athugasemd bætir Gunnar við að Viðskiptablaðið hafi fengið rúmar 40 milljónir „svo þeir geti haldið áfram að skrifa skoðanadálka gegn frelsisbaráttu almennings, baráttu við að losna undan braskinu og okrinu. Þeir fá 6-7 sinnum meira en Samstöðin, eru samkvæmt ríkisstjórn Bjarna 6-7 sinnum mikilvægara fyrirbrigði en Samstöðin.“

Rúmlega hálfur milljarður kom til úthlutunar í ár til 27 fjölmiðla. Úthlutun skiptist með eftirfarandi hætti:

  • Árvakur hf. – 123.898.018 kr.
  • Sýn hf. – 123.898.018 kr.
  • Sameinaða útgáfufélagið ehf. – 66.979.195 kr. 
  • Myllusetur ehf. – 40.511.539 kr. 
  • Fjölmiðlatorgið ehf. – 30.934.727*
  • Bændasamtök Íslands – 22.238.582 kr. 
  • Skessuhorn ehf. – 16.637.261 kr. 
  • Víkurfréttir ehf. – 13.315.665 kr. 
  • Fröken ehf. – 13.127.340 kr. 
  • Sólartún ehf. – 12.468.655 kr. 
  • Fótbolti ehf. – 8.710.122 kr. 
  • Iceland Review ehf. – 8.314.431 kr. 
  • Birtingur útgáfufélag ehf. – 8.207.371 kr.
  • Eigin herra ehf. – 6.400.834 kr.
  • Samstöðin ehf. – 6.371.510 kr. 
  • Útgáfufélagið ehf. – 6.254.723 kr. 
  • Elísa Guðrún ehf. – 6.127.106 kr.
  • Útgáfufélag Austurlands ehf. – 6.005.702 kr. 
  • Prentmet Oddi ehf. – 5.439.839 kr.  
  • Nýprent ehf. – 5.305.651 kr. 
  • Leturstofa Vestmannaeyjum ehf. – 4.796.184 kr. 
  • Steinprent ehf. – 4.176.504 kr. 
  • Eyjasýn ehf. – 3.166.157 kr.
  • Mosfellingur ehf. – 2.237.401 kr. 
  • Skrautás ehf. – 1.924.722 kr. 
  • Tunnan prentþjónusta ehf. – 1.875.985 kr. 
  • Hönnunarhúsið ehf. – 1.578.691

*DV er í eigu Fjölmiðlatorgs ehf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Egill Þór er látinn

Egill Þór er látinn
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Óveður á aðfangadagskvöld: „Líklegt að veðrið muni hafa áhrif á jólin á stórum hluta landsins þetta árið“

Óveður á aðfangadagskvöld: „Líklegt að veðrið muni hafa áhrif á jólin á stórum hluta landsins þetta árið“
Fréttir
Í gær

Sigríður segir Helga ekki geta verið vararíkissaksóknari þrátt fyrir úrskurð ráðherra – „Ber meiri keim af einelti en lögfræði“

Sigríður segir Helga ekki geta verið vararíkissaksóknari þrátt fyrir úrskurð ráðherra – „Ber meiri keim af einelti en lögfræði“
Fréttir
Í gær

Kvikmyndagerðarmaður auglýsir eftir uppljóstrara – „Ef þú býrð yfir upplýsingum sem snerta okkur öll…“

Kvikmyndagerðarmaður auglýsir eftir uppljóstrara – „Ef þú býrð yfir upplýsingum sem snerta okkur öll…“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ný ríkisstjórn kynnt við vetrarsólstöður

Ný ríkisstjórn kynnt við vetrarsólstöður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill Helgason fékk heldur betur „rausnarlega“ gjöf frá Íslandsbanka

Egill Helgason fékk heldur betur „rausnarlega“ gjöf frá Íslandsbanka
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Allt brjálað í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði – Byggðu íbúð í geymslunum

Allt brjálað í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði – Byggðu íbúð í geymslunum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskur skurðlæknir vinnur við að bjarga slösuðum eftir árásina í Magdeburg

Íslenskur skurðlæknir vinnur við að bjarga slösuðum eftir árásina í Magdeburg