Íslensk kona, sem handtekin var á Tenerife fyrir að ganga í skrokk á tengdamóður sinni og mágkonu, er laus úr haldi ytra og er komin til Íslands. Þetta hefur DV fengið staðfest. Engar kærur lágu fyrir og því var konan frjáls ferða sinna. Heimildir herma að fórnarlömb árásanna hafi ákveðið að draga kærur sínar tilbaka og hyggjast útkljá málið hér heima frekar en að standa í málarekstri fyrir spænskum dómstólum.
Greint var frá því á mánudaginn að fertug íslensk kona hefði verið handtekin á Tenerife fyrir áðurnefnda árás sem átti sér stað föstudaginn fyrir viku. Var hún stödd þar ytra ásamt stórfjölskyldu sinni í vetrarfríi.
Samkvæmt lögregluskýrslu kom fram að árásin hafi átt sér stað klukkan 23.30 og aðdragandinn hafi verið sú að konan komst skyndilega í uppnám þegar barnungur sonur hennar var enn vakandi.
Hún brást illa við því þegar mágkona hennar lagði til að hún myndi svæfa barnið og réðst fyrirvaralaust til atlögu. Kemur fram að árásarkonan hafi rifið í mágkonu sína, hrint henni á vegg og þaðan í gólfið og grýtt tveimur vínglösum í átt að mágkonu sinni og tengdamóður.
Sú síðastnefnda reyndi að skakka leikinn og róa konuna en þá hafi árásin beinst að tengdamóðurinni. Konan hafi einnig rifið í hana, hrint henni í gólfið og að öllum líkindum kýlt hana í augað í leiðinni.
Tengdafaðir konunnar hafi einnig verið hrint í gólfið eftir að hafa reynt að róa konuna en hann kærði ekki árásina.
Hótelherbergið þar sem árásin átti sér stað var blóði drifið eftir fjölskylduharmleikinn. Þá vakti það talsverða athygli að í spænsku lögregluskýrslunni var sérstaklega tiltekið að konan glímdi við geðhvörf.
Árásarkonan hefur áður komist í kast við lögin hérlendis fyrir eignaspjöll, árás á lögreglumann og fyrir að hafa margsinnis keyrt undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Hlaut hún meðal annars skilorðsbunda fangelsisdóma fyrir þessi afbrot.