Tryggingafélagið Sjóvá Almennar þarf að borga brúsann vegna skemmda á lögreglubíl sem veitti ökumanni eftirför. Hæstiréttur neitar að verða við beiðni Sjóvá um að taka málið fyrir.
Ríkislögreglustjóri höfðaði mál gegn Sjóvá og krafðist tæplega 3 milljóna króna vegna skemmda á bílnum eftir atvik aðfaranóttar 6. júní árið 2018. Sjóvá neitaði að greiða.
Málsatvik eru þau að lögreglumaður var í bíl á Hringbraut í Reykjavík þegar ökumaður annars bíls kemur aftan að, blikkar ljósum og flautar án tilefnis. Eftir það keyrir hann hægra megin við lögreglubílinn og réttir upp löngutöng með ósæmilegum hætti, það er sýndi svokallað „fokk jú merki“ og ók á brott gegn rauðu ljósi.
Lögreglan setti ljósin á til merkis um að hann ætti að stöðva en þá jók hann hraðann. Á Bústaðavegi var hann kominn á 150 kílómetra á klukkustundar hraða. Lögreglan óskaði þá eftir aðstoð við eftirförina.
Á Höfðabakkabrú var hraðinn kominn upp í 170 og um tíma var ekið á móti umferð þannig að bílar þurftu að sveigja frá. Á Vesturlandsvegi var hraðinn kominn upp í 200 kílómetra á klukkustund. Þá heimilaði varðstjóri að aka utan í bílinn til að stöðva hann.
Ekið var um Listabraut aftur upp á Vesturlandsveg og svo upp í Mosfellsbæ. Þegar bíllinn virtist ætla að snúa aftur við á Vesturlandsvegi ók lögreglubíll á hann þannig að hann snerist við. Þá var ekið þvert yfir umferðareyju og upp í Kjós þar sem búið var að koma fyrir naglamottu til að freista þess að sprengja dekkin.
Að lokum tókst að stöðva bílinn með því að sérsveitarmaður nálgaðist bílinn með ljóslausum bíl, keyrði utan í vinstra afturhornið þannig að bíllinn nerist og fór út af veginum. Kom í ljós að ökumaðurinn var undir áhrifum örvandi efna. Lögreglubíllinn stórskemmdist og kostuðu viðgerðir 2.876.763 krónur.
Sjóvá hafnaði bótakröfum á þeim forsendum að lögreglan sjálf hefði valdið árekstrinum. Ríkislögreglustjóri taldi hins vegar að saknæm háttsemi ökumannsins, sem átti bílinn sem var tryggður hjá Sjóvá, hefði valdið tjóninu. Undir það tók dómari Héraðsdóms Reykjavíkur. Í dómi í september var Sjóvá gert að greiða áðurnefnt tjón og tæpa 1,5 milljónir króna í málskostnað.
Í ákvörðun í gær, 26. nóvember, hafnaði Hæstiréttur að taka málið. Taldi rétturinn að málið hefði ekki fordæmisgildi eða verulega samfélagslega þýðingu.