„Það nægir fyrirtækjunum að merkja sína vöru með 13 ára stimplinum til þess að vernda sína hagsmuni. Vernd barna gegn skaðlegu efni, áreiti og áreitni er hér því miður ekki tekin með í reikninginn,“ skrifar Skúli í pistli á Vísi.
Skúli skipar einnig 4. sæti á lista Framsóknar í Norðausturkjördæmi.
Skúli spyr hvort það sé ekki kominn tími til þess að við tökum umræðu um það fyrir alvöru á Íslandi að hækka aldurstakmarkið á samfélagsmiðlum.
„Hér er um að ræða málefni sem snertir lýðheilsu barna og ungmenna beint og því nauðsynlegt að gefa þessu málefni rými í aðdraganda kosninga,“ segir hann og bendir á að það séu sjö aldursflokkar í bíómyndum og þáttum en aðeins einn á samfélagsmiðlum.
„Á samfélagsmiðlum finnum við efni sem við myndum merkja með merkingum allt upp í 18 ára ef um bíómynd væri að ræða. Ofan á þetta aðgengi að skaðlegu efni bætist síðan við áreitnin og áreitið sem við sem notendur samfélagsmiðla þekkjum því miður svo vel.“
Hann segir vissulega hafa átt sér stað jákvæð þróun og að hlutfall barna frá níu til tólf ára á TikTok og Snapchat hafi lækkað töluvert frá 2021 í kjölfar aukinnar vitundarvakningar og fræðslu til barna og foreldra.
„Foreldrar missa hins vegar tökin þegar 13 ára aldrinum hefur verið náð og upp úr því hækkar hlutfall barna á samfélagsmiðlum töluvert…“
TikTok – 36% meðal 9-12 ára – 83% 13-15 ára
Snapchat – 42% meðal 9-12 ára – 90% 13-15 ára
Instagram – 12% meðal 9-12 ára – 72% 13-15 ára
Facebook – 9% meðal 9-12 ára – 48% 13-15 ára
Discord – 13% meðal 9-12 ára – 29% 13-15 ára
YouTube – 85% meðal 9-12 ára – 85% 13-15 ára
„Á samfélagsmiðlum getur 13 ára barn komist í snertingu við efni sem talið er geta haft skaðleg áhrif á einstaklinga allt upp í 18 ára. Þau þurfa ekki einu sinni að leita eftir því sjálf heldur getur ógagnsær algóritmi miðlanna leitt þau á slíka staði,“ segir hann.
Skúli hvetur fólk til að taka málin í sínar hendur.
„Í stað þess að láta fyrirtækin ákveða aldurstakmarkið út frá sínum hagsmunum skulum við hugsa aldurstakmarkið út frá hagsmunum okkar […] Hugsum okkur hvað myndi gerast ef við myndum fjarlæga öll börn yngri en 16 ára af samfélagsmiðlum? Munum að samfélagsmiðlarnir eru ekkert án okkar. Valdið þarf ekki alltaf að vera þeirra. Þeir myndu vafalaust svara því með því að gera allt í sínu valdi til þess að tryggja sína miðla þannig að þeir væru öruggur staður fyrir börn til þess að geta boðið þau aftur velkomin til baka. Lög og reglur geta verið nauðsynlegar til þess að þvinga fram breytingar. Tökum valdið í okkar hendur og metum efni samfélagsmiðla útfrá þroska barna. Þannig valdeflum við foreldra í að takast á við félagslegt netöryggi.“