fbpx
Mánudagur 23.desember 2024
Fréttir

Namibískir sjómenn krefja Samherja um fullar efndir samninga – Hafa þurft að koma börnum til ættingja vegna fátæktar

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 15. nóvember 2024 12:30

Sjómennirnir vilja 140 þúsund namibískra dollara hver.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Namibískir sjómenn sem var sagt upp hjá dótturfélagi Samherja krefja útgerðarfyrirtækið um fullar efndir á samningum sínum. Í nýrri skýrslu er bágri stöðu þeirra lýst, bæði fjárhagslegri og heilsufarslegri.

Gert var grein fyrir niðurstöðum rannsóknarstofnunarinnar IPPR á áhrifum uppsagna Samherja í Namibíu árið 2019 í vikunni. Þar stigu einnig nokkrir sjómenn í pontu og lýstu lífi sínu.

Áhrif á heilsu og líðan

Í frétt namibísku fréttastofunnar NBC um málið segir að í skýrslunni sé fjallað um sundrungu, einmanaleika og fátækt sjómannanna. Þeir hafi glímt við andlega erfiðleika og háan blóðþrýsting. Sagt er að sumir þeirra hafi tekið eigið líf. Áhrifin séu mikil á fjölskyldurnar og kynbundið ofbeldi í samfélaginu hafi aukist.

Greint er frá því að sjómennirnir hafi verið á atvinnuleysisbótum frá ríkinu síðan árið 2020 en þær dugi hvergi nærri til. Margir þeirra eru orðnir stórskuldugir og eiga erfitt með að framfleyta sér. Uppsagnirnar hafa raskað fjárhagslegum áætlunum þeirra.

Börn send til ættingja

Í skýrslunni kemur fram að 80 prósent sjómannanna reiði sig á fjárhagslegan stuðning frá ættingjum og vinum. Sumir hafi fengið vinnu í stuttan tíma eða hlutastörf, svo sem við hárgreiðslu eða við að selja varning úti á götu.

„Þeir lýstu því hvernig þeir þurftu að koma börnum sínum fyrir í fóstri hjá ættingjum af því að þeir gátu ekki brauðfætt þau. Áttu ekki efni á að senda þau í skóla. Þannig að eitt barn var sent til þessa ættingja og annað til annarra ættingja. Flestir sjómennirnir sem við töluðum við eiga fjögur eða fleiri börn,“ sagði Frederico Links, sem kom að rannsókn IPPR. „Áhrifin á börn og fjölskyldur, brotnar fjölskyldur, er eitthvað sem þarf að kanna betur.“

Krefjast efnda á samningum

Sjómennirnir krefjast 140 namibískra dollara hver, sem er rúm ein milljón íslenskra króna.

„Samherji verður að semja við sjómennina sem urðu fyrir uppsögnum og bæta fyrir það sem er útistandandi í samningunum okkar,“ sagði Johny Nefungo, fyrrverandi sjómaður.

„Þið gætuð horft á mig núna og hugsað með ykkur að ég líti ágætlega út. En það er út af konunni minni. Hún er sú eina sem aflar okkur tekna. En í raun og veru gengur okkur ekki vel. Við erum svöng. Það er eins og konan mín sé höfuð heimilisins núna,“ sagði Daniel Nailonga, einnig fyrrverandi sjómaður.

Buðust til að borga hluta af bótum

Fyrir ári síðan bauðst Esja, félag í eigu Samherja, til að borga hluta af þeim bótum sem félagsdómur í Namibíu dæmdi 23 sjómönnum sem störfuðu á togaranum Heinaste árið 2021. Heinaste var í eigu félagsins ArcticNam sem var í helmingseigu Samherja.

Sjá einnig:

Namibískir sjómenn höfnuðu boði frá félagi í eigu Samherja – Vilja fullar bætur sem dæmdar voru 2021

Lögmaður sjómannanna hafnaði boðinu og sagði að þeir ættu að fá alla upphæðina  sem þeir fengu dæmda með vöxtum. Það er 1,8 milljónir namibískra dollara eða 15,7 milljónir króna. Í fréttum um málið kom ekki fram hversu hátt boð Esju var.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innflytjandinn sem lét íslenskar konur heyra það: „Væri reiðin ykkar önnur ef Íslendingur hefði skrifað þetta?“

Innflytjandinn sem lét íslenskar konur heyra það: „Væri reiðin ykkar önnur ef Íslendingur hefði skrifað þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurður G. segir að eins og fyrr sé hnefinn á lofti hjá Eflingu

Sigurður G. segir að eins og fyrr sé hnefinn á lofti hjá Eflingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hrafnhildur dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt

Hrafnhildur dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Baldvin rak 99 starfsmenn sem skrópuðu á morgunfund – „Snáfið út úr fyrirtækinu mínu undir eins“

Baldvin rak 99 starfsmenn sem skrópuðu á morgunfund – „Snáfið út úr fyrirtækinu mínu undir eins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Faðir sló og sparkaði í dóttur sína – Hótaði að berja hana svo illa að hún gæti ekki andað fyrir blóði

Faðir sló og sparkaði í dóttur sína – Hótaði að berja hana svo illa að hún gæti ekki andað fyrir blóði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sævar Þór beinir athygli að því að sumir hafa það ekki gott um jólin

Sævar Þór beinir athygli að því að sumir hafa það ekki gott um jólin