fbpx
Föstudagur 15.nóvember 2024
Fréttir

Móðir barns með fötlun sendir forystu KÍ opið bréf – „Þeir sjá bróður sinn þjást og vita ekki hvernig þeir eiga að hjálpa“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 15. nóvember 2024 09:30

Valgerður Bára Bárðardóttir skrifar forystu Kennarasambands Íslands opið bréf og hvetur hana til að endurskoða aðferðafræði verkfallsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valgerður Bára Bárðardóttir skrifar forystu Kennarasambands Íslands opið bréf og hvetur hana til að endurskoða aðferðafræði verkfallsins.

Valgerður er móðir barns með fötlun. „Barn sem hefur verið heima hjá mér í ótímabundnu verkfalli leikskólans í 13 daga. Verkfallið er vissulega ætlað að knýja fram breytingar á kjörum starfsfólks leikskóla, og ég hef skilning á þeim kröfum. En mig langar að vekja athygli ykkar á þeim hrikalegu afleiðingum sem þessar aðgerðir hafa á viðkvæmasta hóp samfélagsins – börn með sértækar þarfir – og fjölskyldur þeirra,“ segir hún í pistli á Vísi.

„Sonur minn hefur verið án sértæks stuðnings frá leikskólanum allan þennan tíma. Ég hef ekki aðgang að sérfræðingum, þjálfun eða stuðningi sem hann krefst daglega til að þrífast. Við erum komin á þann stað að ég óttast afleiðingarnar fyrir andlega og líkamlega líðan hans. Hann hefur misst stöðugleika, öryggi og rútínu sem hann treystir á til að takast á við heiminn. Álagið er ekki aðeins á honum – systkinin hans horfa upp á þetta ástand dag eftir dag, og sjá móður sína örmagna, bæði andlega og líkamlega. Þeir sjá bróður sinn þjást og vita ekki hvernig þeir eiga að hjálpa.“

„Siðferðilega óásættanlegt“

Valgerður segir að þetta sé ekki aðeins sárt. „Það er siðferðilega óásættanlegt að setja börn sem mín í þessa stöðu. Verkföll eru oft réttlætt með því að þau séu til hagsbóta fyrir samfélagið til lengri tíma litið. En hvað með réttindi barnsins? Hvað með siðferðilega skyldu okkar til að tryggja að þau fái stuðninginn sem þau eiga rétt á? Þegar barnið mitt fær ekki nauðsynlegan stuðning, er það ekki aðeins tímabundinn skaði – það eru snjóboltaáhrif sem munu hafa afleiðingar fyrir hann og fjölskyldu hans til lengri tíma.“

Valgerður segir fjölskylduna nú þegar hafa þurft að axla verulegt fjárhagslegt tap vegna verkfallsins.

„Ég hef ekki getað stundað vinnu mína af fullum krafti, og við höfum þurft að forgangsraða fjármunum okkar til að mæta þessum nýju aðstæðum. Það hefur áhrif á alla fjölskylduna, ekki bara mig og son minn, heldur einnig systkini hans. Það er erfitt að útskýra fyrir öðrum börnum mínum hvers vegna við erum í þessari stöðu og hvers vegna bróðir þeirra fær ekki þá aðstoð sem hann þarf.“

„Samfélag sem brýtur niður þau veikustu“

Valgerður biður forystu KÍ um að hugsa um börn eins og son hennar þegar teknar eru ákvarðanir um aðgerðir.

„Ég bið ykkur að íhuga hvort það sé sanngjarnt að fórna þeirra velferð í þessari baráttu. Hver er siðferðileg ábyrgð ykkar gagnvart börnum með sérþarfir og fjölskyldum þeirra? Við sem foreldrar erum að berjast á báðum vígstöðvum – að reyna að halda fjölskyldulífinu gangandi, á meðan við fylgjumst með geðheilsu okkar og líðan fjara út fyrir augum okkar,“ segir hún.

„Ég hvet ykkur til að endurskoða aðferðafræðina í þessari baráttu. Er ekki hægt að ná fram kröfum án þess að leggja þyngstu byrðarnar á þau börn sem minnst mega sín? Við þurfum samfélag sem stendur saman og verndar réttindi barna, ekki samfélag sem brýtur niður þau veikustu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pettersen til Eyja?
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Jörgen segir að nauðganir séu allt að því refsilausar – „Dómskerfið undir leiðsögn Al­þing­is stendur sig afleitlega“

Jörgen segir að nauðganir séu allt að því refsilausar – „Dómskerfið undir leiðsögn Al­þing­is stendur sig afleitlega“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

27 faldur hagnaður á einbýlishúsi unga öryrkjans – „Eitt skýrasta dæmi óréttlætis sem hægt er að hugsa sér“

27 faldur hagnaður á einbýlishúsi unga öryrkjans – „Eitt skýrasta dæmi óréttlætis sem hægt er að hugsa sér“
Fréttir
Í gær

Smjörþjófnaður eykst í Rússlandi – Er merki um undirliggjandi vanda

Smjörþjófnaður eykst í Rússlandi – Er merki um undirliggjandi vanda
Fréttir
Í gær

Kristrún bregst við bloggskrifum Þórðar Snæs – „Mér leið eins og ég hefði verið kýld í magann“

Kristrún bregst við bloggskrifum Þórðar Snæs – „Mér leið eins og ég hefði verið kýld í magann“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kristrún hafi tekið Stefán Einar í kennslustund

Segir að Kristrún hafi tekið Stefán Einar í kennslustund
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nú er komið að ögurstundu – Verða ESB og Úkraína ein gegn Rússlandi?

Nú er komið að ögurstundu – Verða ESB og Úkraína ein gegn Rússlandi?