fbpx
Fimmtudagur 21.nóvember 2024
Fréttir

Hildur skýtur fast á Hallgrím: „Út í hött að smætta og afbaka þessa umræðu á þennan hátt“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 1. nóvember 2024 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, skýtur föstum skotum að rithöfundinum Hallgrími Helgasyni vegna ummæla hans í þætti Gísla Marteins Baldurssonar síðasta föstudag.

Hildur skrifar grein sem birtist á vef Vísis í morgun þar sem hún segir meðal annars:

„Hallgrímur Helgason rithöfundur barði eftirminnilega á bíl Geirs Haarde í janúarmánuði árið 2009 eins og þar væri einmitt ekki um að ræða manninn sem átti stærstan hlut í því að fall bankanna var ekki ríkisvætt og var ein farsælasta bjargvættarsaga fjármálahrunsins á heimsvísu. Í Heimildinni á dögunum segir Hallgrímur reyndar sjálfur að hann sé ekki góður í að ræða efnahagsmál hverskonar. En hann segir í sama viðtali að hann hafi meiri skilning og sé jafnvel mjög góður í að ræða réttlæti. Gott og vel.“

Hvað mátti hann ekki segja?

Hildur snýr sér svo að umræddum þætti Gísla Marteins þar sem Hallgrímur „hringaði sig á sófann“ og sagði „glaðhlakkalegur“ að forsætisráðherrann okkar, Bjarni Benediktsson, „gæti bara ekki talað svona“.

„Rithöfundurinn var þar að vísa í viðtal sem forsætisráðherra hafði farið í nokkrum dögum áður í hlaðvarpsþættinum Einni pælingu. En hvað var það í viðtalinu sem forsætisráðherra mátti ekki segja, að mati Hallgríms,“ spyr Hildur í grein sinni.

Sjá einnig: Þórunn sár og reið út í Bjarna:„Nú eru það svo múslimar sem fá að heyra það“

„Í innblásnum mónólóg rithöfundarins í appelsínugula sófanum var Bjarna Benediktssyni meðal annars gert að sök að tala um hættur af öðrum menningarheimum. Skoðum það nánar. Í viðtalinu ræðir Bjarni um kostnaðinn af verndarkerfinu sem fór í fyrra yfir 20 milljarða. Bjarni nefnir í því kostnaðarsamhengi að innviðir okkar ráði ekki við svo mikinn fjölda umsókna og þá sér í lagi frá fólki sem kemur úr öðrum menningarheimi, með erfiðari menningarlega aðlögun með erfiðari tungumál sem einfaldlega kallar á umfangsmeiri lausnir.“

Hildur segir að síðar í viðtalinu hafi Bjarni nefnt vissulega að slysin væru til að varast þau til að halda í þau gildi sem hafi gert Norðurlöndin að mestu mannréttindasamfélögum í heimi.

„Hann nefnir dapurleg dæmi um að börn hafi neitað að taka höndina á kvenkyns kennara. Dæmi sem undirrituð giskar á að velflestum Íslendingum finnist þess virði að vera vakandi gagnvart, líka Hallgrími Helgasyni, og undirstrika einmitt mikilvægi þess að vanda til verka í þessum málum,“ segir Hildur og bætir við að Hallgrímur hafi í engu nefnt þetta samhengi í orðum Bjarna heldur þvert á móti gefið honum að sök að tala ekki af virðingu við fólk sem kemur til Íslands til að starfa við að byggja hús.

Sjá einnig: Segir Hallgrím hafa afhjúpað Bjarna í beinni – „Takk Hallgrímur“

Út í hött

„Í viðtalinu er af og frá að forsætisráðherra hafi gerst sekur um nokkuð slíkt heldur segir hann þvert á móti að sú fólksfjölgun sem stafi af ásókn í slík störf, mestmegnis af EES svæðinu, hafi ekki skapað mikil vandamál,“ segir Hildur og heldur áfram:

„Í sófanum varpaði Hallgrímur einnig fram spurningu nokkuð kotroskinn um hvort fólk þyrfti að vera hrætt við mat frá öðrum menningarheimum. Svarið við því er auðvitað nei og út í hött að smætta og afbaka þessa umræðu á þennan hátt. Aftur á móti stafar hætta af því að setja kíkinn fyrir blinda augað gagnvart þeim áskorunum, til að mynda í skólakerfinu, sem fylgja því að fólki sem býr hér á landi hefur fjölgað gríðarlega mikið undanfarin ár langt umfram aðrar Evrópuþjóðir. Hallgrími væri ef til vill nær að beina sínum rómaða orðaflaumi í að ræða þessi mál málefnalega og/eða uppbyggilega,“ segir Hildur.

Hún segir svo að í lok „sófaræðunnar“ hafi Hallgrímur klykkt út með að segja hátt og snjallt að það sé ekkert „útlendingavandamál“ til staðar á Íslandi og eina „útlendingavandamálið“ sé bara hjá þessum „pólitískum með einhver ömurleg komment eins og þessi“. Hildur segir að í ljósi þessara lokaorða sé rétt að nefna að Bjarni talaði aldrei um útlendingavandamál.

„Það liggur fyrir að frá orði til orðs sagði Bjarni í raun ekkert af því sem heiftúðugur Hallgrímur í sófanum brigslaði honum um að segja. Í besta falli var þarna um að ræða verulega afbakaða túlkun Hallgríms og hans hugarheims á orðum forsætisráðherrans,“ segir Hildur sem rifjar svo aftur upp þegar Hallgrímur barði á bíl Geirs H. Haarde.

„Í blaðaviðtali nokkrum árum eftir mótmæli Hallgríms gegn Geir Haarde sagðist rithöfundurinn hafa fengið sína pólitísku fullnægingu þegar hann barði bílinn. Hvort sófastund liðinnar viku hafi veitt rithöfundinum viðlíka unað veit ég ekki en hún vekur upp spurningar um réttlætið sem Hallgrímur segist sjálfur vera svo góður í. Í því samhengi er réttmætt að spyrja réttlætissérfræðinga landsins, rithöfundinn og aðra; Eru ýkjur og bjögun á staðreyndum nátengdar lygum? Skiptir sannleikur máli í lýðræðislegri umræðu og geta falsfréttir og lygar grafið undan lýðræðinu? Skiptir lýðræði máli til að stuðla að réttlæti? Eða þegar öllu er á botninn hvolft, er hægt að tala um réttlæti ef sannleikurinn er aukaatriði í þeirri umræðu?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Er þriðja heimsstyrjöldin í uppsiglingu? Hvað segja sérfræðingar?

Er þriðja heimsstyrjöldin í uppsiglingu? Hvað segja sérfræðingar?
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Segir að Kim Jong-un hafi Pútín að fífli

Segir að Kim Jong-un hafi Pútín að fífli
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ákærð fyrir stórfellda líkamsárás á starfsmann Vinakots

Ákærð fyrir stórfellda líkamsárás á starfsmann Vinakots
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Salka Sól sendir borgarstjóra væna pillu – „Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!“

Salka Sól sendir borgarstjóra væna pillu – „Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!“