Jón var í viðtali í Spursmálum á mbl.is um helgina þar sem fram kom að hann myndi sækjast eftir leiðtogasæti í Reykjavík fyrir næstu þingkosningar. Er því ljóst að Jón mun etja kappi við tvær sitjandi þingkonur, þær Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur og Hönnu Katrínu Friðriksson, sem sitja í oddvitasætunum í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.
Í viðtalinu sagðist Jón vonast til þess að vinna prófkjör nokkuð auðveldlega. Deilir hann skjáskotum af umfjöllunum mbl.is annars vegar og Mannlífs hins vegar en í þeirri síðarnefndu var fyrirsögnin: Jón hjólar í konur.
Jón furðar sig á þessari orðanotkun.
„Að hjóla í einhvern merkir það sama og að rjúka í einhvern og þýðir að ráðast á einhvern. Starfandi þingmaður er búinn að senda mér tóninn líka og snupra mig, segir að ég sé nú ekki fyrsti freki kallinn sem vill fá rauðan dregil og allt gert fyrir sig og gefur líka í skyn að ég sé tækifærissinni sem sé að reyna að nýta mér þann gríðarlega meðbyr sem sé með Viðreisn núna,“ segir Jón sem vísar þarna í ummæli Hönnu Katrínar í Morgunblaðinu í dag.
„Ég er ekki þingmaður eða gegni annarri opinberri valdastöðu. Ekki forstjóri fyrirtækis eða forsvarsmaður samtaka. Ég er bara sjálfstætt starfandi listamaður, rithöfundur og leikari og kosningar eru ekki áætlaðar fyrren eftir 8-10 mánuði. Kannski kall en samt bara kall útí bæ,“ segir Jón sem vísar svo orðrétt í viðtalið við Spursmál:
Blaðamaður: Nú er fólk sem vermir þessi sæti eftir síðustu kosningar. Þú ert þá væntanlega að fara að taka slag við þessa nýju félaga þina, Þorbjörgu Gunnlaugsdóttur og…
Ég: Já, einmitt. Það er svolítið name of the game. Og það tók mig langan tíma að átta mig á því, af því að ég kom náttúrulega inn fyrir slysni í pólitík…
Blaðamaður: Verða þetta prófkjör ?
Ég: Já, það verða prófkjör.
Blaðamaður: Þannig að þetta verður blóðugur slagur?
Ég: Það er ekki víst.
Blaðamaður: Heldur þú að þú vinnir þetta auðveldlega?
Ég: Ég vonast til þess já. Og ég vil reyna að komast út úr þessu, gegnum þetta án þess að valda einhverjum sárindum eða stíga á einhverjar tær. Mér finnst allt i lagi að pikka í fólk og kitla það en mér finnst annað að hrinda fólki. Ég geri stóran mun þarna á. Mér finnst þetta bara spennandi. Ég hef aldrei tekið þátt í svona.
Jón endar pistilinn sinn á þessum orðum:
„Hvað felst í þessum orðum mínum sem gefur tilefni til þessara viðbragða ? Ég veit það ekki.“