Kvikmyndastjarnan Arnold Schwarzenegger hefur ákveðið að styðja Kamölu Harris í bandarísku forsetakosningunum. Schwarzenegger, sem er fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníu fyrir Repúblikanaflokkinn, er allt annað en sáttur með Donald Trump, forsetaefni flokksins. Sérstaklega fóru innflytjendaummæli Trump um að Bandaríkin væru „ruslakista heimsins“ fyrir brjóstið á Schwarzenegger sem er sjálfur innflytjandi.
„Fyrir einhvern sem að talar við fólk frá öllum heimshornum og veit að enn er litið upp til Ameríku þá er það afar óþjóðrækið að kalla landið ruslukistu heimsins. Það gerir mig brjálaðan. Ég verð alltaf Bandaríkjamaður áður en Repúblikani. Þess vegna mun ég kjósa Kamölu Harris og Tim Walz,“ skrifaði Schwarzenegger í færslu á samfélagsmiðilinn X.
Schwarznegger hefur þó verið gagnrýninn á Trump undanfarin ár. Hann sagði fyrir nokkru síðan að Trump yrði minnst sem versta forseta Bandaríkjanna og spáði fyrir um að ef hann myndi ná öðru kjörtímabili þá yrði hann „reiðari en áður og myndi ala á sundrungu og hatri sem aldrei fyrr“.