fbpx
Þriðjudagur 29.apríl 2025
Fréttir

Vel vitað að maðurinn í Breiðholtsmálinu væri hættulegur en ekkert brugðist við viðvörunum- „Hefði verið hægt að koma í veg fyrir að svona færi“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 25. október 2024 12:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á fertugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa banað móður sinni í fyrrakvöld. Fram hefur komið að maðurinn glímdi við andleg veikindi og hafði meðal annars áður verið sakfelldur fyrir tilraun til að bana föður sínum.

Afstaða, félag fanga, segir í yfirlýsingu að vel hafi verið vitað að téður maður væri hættulegur. Afstaða hafi varað við því  hvað myndi gerast ef ekki yrði gripið til viðeigandi aðgerða. Þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir séu engin úrræði sem grípi einstaklinga sem ljúka afplánun en þurfa sértækan stuðning til að tryggja eigið öryggi og öryggi samfélagsins. Þetta úrræðaleysi hafi nú leitt til tveggja hörmulegra mála. Annarsvegar áðurnefnt manndráp og svo  hins vegar sé annar maður grunaður um  nauðgun og líkamsárás skömmu eftir að hafa losnað úr afplánun.

„Hættan af þessum mönnum var þekkt og Afstaða búin að vara ítrekað við hvað myndi hugsanlega gerast og því hefði verið hægt að koma í veg fyrir að svona færi ef gripið hefði verið til viðeigandi aðgerða.“

Báðir menn voru látnir afplána fulla dóma sína þar sem þeir þóttu of hættulegir fyrir reynslulausn. Engu að síður hafi ekkert eftirlit verið haft með þeim að afplánun lokinni. Hættan af báðum mönnum hafi verið fyrirséð. Afstaða krefst því tafarlausra aðgerða svo koma megi í veg fyrir frekari hörmungar.

„Afstaða krefst tafarlausra aðgerða svo koma megi í veg fyrir frekari hörmungar. Stjórnvöld þurfa að bæta aðgengi að úrræðum fyrir einstaklinga sem losna úr fangelsi og tryggja að þeir fái þann stuðning sem þeir þurfa til að aðlagast samfélaginu á öruggan hátt. Ef ekki verður gripið til aðgerða nú þegar er hætta á því að fleiri hörmuleg atvik eigi sér stað.
Afstaða leggur áherslu á að stjórnvöld verði að axla ábyrgð sína á öryggi samfélagsins og tryggja að úrræði séu til staðar fyrir þá sem þurfa á þeim að halda. Við munum áfram berjast fyrir nauðsynlegum umbótum á geðheilbrigðiskerfinu og fullnustukerfinu til að koma í veg fyrir frekari atvik sem hafa skelfilegar afleiðingar.“

Krefjast aðgerða

Yfirlýsing Afstöðu í  heild:

„Afstaða – vill koma á framfæri alvarlegum áhyggjum vegna tveggja nýlegra atvika þar sem einstaklingar, sem hafa lokið afplánun í fangelsi og metnir sem hættulegir með mikla þjónustuþörf, tengjast alvarlegum atvikum undanfarið. Í fyrra tilfellinu er einstaklingur grunaður um nauðgun og líkamsárás skömmu eftir að hafa losnað úr afplánun, en í seinna tilfellinu er annar einstaklingur grunaður um manndráp. Hættan af þessum mönnum var þekkt og Afstaða búin að vara ítrekað við hvað myndi hugsanlega gerast og því hefði verið hægt að koma í veg fyrir að svona færi ef gripið hefði verið til viðeigandi aðgerða.

Þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir frá Afstöðu og sérfræðingum hefur verið skortur á úrræðum fyrir þá einstaklinga sem losna úr fangelsi en þurfa sértækan stuðning til að tryggja bæði þeirra eigið öryggi og samfélagsins alls. Þetta úrræðaleysi hefur nú leitt til þess að tvö hörmuleg mál hafa komið upp.

• Til útskýringar má þess einnig geta að báðir mennirnir voru látnir afplána fulla dóma þar sem hættan sem steðjaði af þeim var þekkt og því ekki boðið upp á reynslulausn, hins vegar hefur það í för með sér að þegar þeim er sleppt er ekkert eftirlit haft með þeim.

Sveitarfélög eiga samkvæmt lögum að bera ábyrgð á þessum úrræðum en ljóst er að þau standa ekki ein undir því, sérstaklega þegar um er að ræða smærri sveitarfélög. Það hefur leitt til þess að einstaklingar með sértækar þarfir eru settir í aðstæður sem eru þeim og samfélaginu hættulegar. Afstaða hefur ítrekað bent á nauðsyn þess að bæta aðgengi að sérhæfðum búsetuúrræðum með sérhæfðu starfsfólki en ekkert hefur verið gert til að leysa þetta vandamál. Hættan varðandi þessa tvo einstaklinga var í raun fyrirséð og þeir eru aðeins hluti af örstækkandi hópi sem er á leið í samfélagið eftir afplánun dóma og enn fleiri eru þegar nú frjálsir í samfélaginu.
Afstaða krefst tafarlausra aðgerða svo koma megi í veg fyrir frekari hörmungar. Stjórnvöld þurfa að bæta aðgengi að úrræðum fyrir einstaklinga sem losna úr fangelsi og tryggja að þeir fái þann stuðning sem þeir þurfa til að aðlagast samfélaginu á öruggan hátt. Ef ekki verður gripið til aðgerða nú þegar er hætta á því að fleiri hörmuleg atvik eigi sér stað.

Afstaða leggur áherslu á að stjórnvöld verði að axla ábyrgð sína á öryggi samfélagsins og tryggja að úrræði séu til staðar fyrir þá sem þurfa á þeim að halda. Við munum áfram berjast fyrir nauðsynlegum umbótum á geðheilbrigðiskerfinu og fullnustukerfinu til að koma í veg fyrir frekari atvik sem hafa skelfilegar afleiðingar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“
Fréttir
Í gær

Guðbrandur: „Í fram­hald­inu var kon­an svo niður­lægð með ýms­um fá­rán­leg­um spurn­ing­um“

Guðbrandur: „Í fram­hald­inu var kon­an svo niður­lægð með ýms­um fá­rán­leg­um spurn­ing­um“
Fréttir
Í gær

Meint hópnauðgun á 16 ára stúlku hvorki á borði lögreglu né Landspítala

Meint hópnauðgun á 16 ára stúlku hvorki á borði lögreglu né Landspítala
Fréttir
Í gær

Segir virka í athugasemdum afvegaleiða umræðuna – „Hef ekki séð myndum af íslenskum nauðgurum dreift á skemmtistaði“

Segir virka í athugasemdum afvegaleiða umræðuna – „Hef ekki séð myndum af íslenskum nauðgurum dreift á skemmtistaði“
Fréttir
Í gær

Anna Kristín varpar ljósi á stöðuna í skúrnum: „Nema svo byrja þeir að stela hlut­un­um okk­ar þarna“

Anna Kristín varpar ljósi á stöðuna í skúrnum: „Nema svo byrja þeir að stela hlut­un­um okk­ar þarna“