Valgeir Guðjónsson er mjög óánægður með fyrirhugaða heiðurstónleika Spilaverks þjóðanna í Hörpu, enda telur hann sig hlunnfarinn og veltir fyrir sér hvort um heiður eða lítilsvirðingu sé að ræða. Hann vekur athygli á því á Facebook að hann hafi lýst óánægju sinni í svari við boði sem hann fékk á tónleikana sem verða haldnir um helgina:
„Sæll Einar, óánægja mín hefur ekki farið framhjá þér varðandi hvernig staðið hefur verið að þessum tónleikum sem þú býður mér á. Ég reikna með að Jón Ólafsson hafi verið hönnuðurinn frekar en þið hjá Móðurfélaginu/ Dægurflugunni. – Leiðréttu mig endilega ef það er ekki svo.
Það að fá Diddú í flutning laga okkar og þá son Egils en líta fram hjá mér ( ég get ekki talað fyrir hönd Sigurðar Bjólu ), er særandi og að margra mati ef ekki flestra sýnir það lítilsvirðingu í minn garð.
Væru flytjendur allir úr öðrum áttum myndi það horfa öðruvísi við. Þá hefði samt verið eðlileg og kurteis framkoma að ræða við höfunda um þennan stóra viðburð og reifa hugmyndir um hann.
Tveir af meðlimum Spilverks eiga sér fulltrúa í flutningi laga á þessum tónleikum ( Diddú einn fyrrverandi virkur meðlimur og einn afkomandi, Ólafur Egilsson ) á meðan flutnings er ekki óskað af hinum tveimur meðlimunum, að minnsta kosti hef ég ekki verið beðinn.
Mér þykir leitt að þurfa að afþakka boð ykkar þar sem í mínum huga á orðið heiður ekki heima hér heldur lítilsvirðing.
Kær kveðja
Valgeir Guðjónsson“
Valgeir bendir á að formálinn að þessu sé sá að honum ásamt Sigurði Bjólu og fleirum barst töluvpóstur í lok maí þar sem þeim var boðið á tónleikanna. Tónleikarnir hafi þá þegar verið skipulagðir án þeirra vitundar.
„Við brugðumst strax við og lýstum yfir óánægju okkur en fátt var þá um svör.
Svo er nú það.“
Hljómsveitin Spilaverk þjóðanna fagnar 50 ára afmæi á næsta ári. Sveitin samanstóð af þeim Valgeiri, Sigurði Bjólu, Agli Ólafssyni og Diddú. Valgeir hefur áður rætt um óánægju sína við DV, en þar sagðist hann stórlega efa að tónleikunum, sem eru kallaðir heiðurstónleikar, sé í raun ætlað að heiðra hljómsveitarmeðlimi.
Sjá einnig: Ósátt við sniðgöngu Valgeirs á tveimur viðburðum í mánuðinum – „Hann syngur áfram eins og engill“