Uppgjör Reykjavíkurborgar við fyrrum borgarstjóra, Dag B. Eggertsson, vakti mikla athygli enda fékk Dagur greidda út 69 ótekna orlofsdaga sem hann hafði safnað upp á 10 árum í borgarstjórastól. Dagur útskýrði í kjölfarið að við starfslok hjá borginni gerist það sjálfkrafa að áunnið orlof kemur til greiðslu, þar með gildi það sama um allt starfsfólk Reykjavíkurborgar. En það reyndist þó ekki svo.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, furðaði sig á uppgjörinu og benti á að borgin hefði reynt að koma í veg fyrir að almennir starfsmenn gætu flutt orlofsdaga milli ára. Vði kjarasamningagerð árið 2020 hafi borgin krafist þess að uppsafnað orlof félli niður ef starfsmenn nýtti það ekki innan þriggja ára.
Sólveig greinir nú frá því á Facebook að Efling hafi haft fullnaðarsigur í máli félagsmanns sem lenti í því að Reykjavíkurborg hafði af honum 86,22 óteknar orlofsstundir.
„Um daginn sagði ég ykkur frá því að Reykjavíkurborg hefði haft af frábærum Eflingarfélaga í lífsnauðsynlegu umönnunarstarfi 86,22 óteknar olofsstundir. Þetta var gert á sama tíma og fréttir bárust almenningi af því að opinber yfirstétt gæti árum saman safnað upp fjölda orlofsstunda sem að meðlimir hennar leystu svo út sem milljónir króna þegar látið væri af störfum.
Ragnar Ólason, sérfræðingur hjá Eflingu, sendi erindi til velferðar og mannauðssviðs borgarinnar og krafðist þess að fyrningin á orlofi Eflingar-félagans yrði samstundis dregin til baka. Og nú hefur það gerst: Borgin hefur tekið ákvörðun um að hætta við orlofs-upptökuna og skila orlofsstundunum aftur til réttmæts eiganda.
Fullnaðarsigur unninn í málinu. Áfram Efling og Eflingar fólk, alla leið!“