Frá þessu var greint í hádegisfréttum RÚV.
Þar kom fram að tvö börn séu enn á gjörgæslu, alvarlega veik, en tvö börn sem lágu inni á spítalanum hafi verið útskrifuð í dag. Talið er að börnin hafi veikst eftir að hafa borðað sýktan mat í leikskólanum.
Í frétt RÚV kom fram að verið væri að rannsaka sýni úr ávöxtum, frosnu grænmeti og kjöti með það að marki að rekja uppruna sýkingarinnar en búist er við því að niðurstöður úr þeim liggi fyrir um helgina.