fbpx
Mánudagur 28.október 2024
Fréttir

Sigmar fékk átakanlegt símtal frá föður tveggja bræðra: Létust með tólf klukkustunda millibili – „Sagan sem hann bað mig um að segja er sorglegri en orð fá lýst“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 24. október 2024 08:28

Sigmar Guðmundsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fyrir fáeinum vikum hringdi faðir tveggja ungra manna í mig. Hann heitir Ásgeir Gíslason. Hann hafði þá lesið grein sem ég skrifaði um tíð dauðsföll sem rekja má til fíknisjúkdómsins. Sagan sem hann bað mig um að segja er sorglegri en orð fá lýst.“

Svona hefst grein sem Sigmar Guðmundsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og núverandi þingmaður Viðreisnar, skrifar á vef Vísis. Í grein sinni segir hann að saga föðurins afhjúpi úrræðaleysi og það mikla vanmat sem er í samfélaginu á hryllilegum afleiðingum fíknisjúkdómsins.

„Ásgeir bað mig um að koma á framfæri því sem gerðist í hans fjölskyldu í ágúst. Hann treystir sér ekki til þess sjálfur en vill rjúfa þá þögn sem oft ríkir um það góða fólk sem fellur frá vegna veikinda. Fjölskylda hans er sammála þeirri nálgun,“ segir Sigmar.

Þann 9. ágúst síðastliðinn fékk Ásgeir þá harmafregn að sonur hans, Jón Kjartan Einarsson, hefði látist í íbúð sinni í Kópavogi. Jón Kjartan hafði átt við vímuefnavanda að stríða og mátti rekja andlátið til ofskömmtunar efna. Jón Kjartan var fæddur árið 1990.

Ólýsanlegur harmur

Sigmar heldur svo áfram og lýsir því sem gerðist þennan örlagaríka dag.

„Bróðir Jóns Kjartans, Sindri Geir Ásgeirsson sem fæddur er árið 1997, bjó með honum í íbúðinni í Kópavogi. Hann átti líka við vímuefnavanda að stríða. Eftir að lögregla og heilbrigðisstarfsmenn höfðu yfirgefið íbúðina eftir andlátið vildi Sindri dvelja þar áfram, þrátt fyrir að fjölskyldu hans hafi þótt heppilegra að hann gerði það ekki. Örfáum stundum síðar var fjölskylduna farið að undra að ekki náðist samband við Sindra Geir. Lögregla fór á vettvang og kom að Sindra látnum 12 klukkustundum eftir andlát bróður hans. Bræðurnir féllu frá vegna ofskömmtunar með 12 tíma millibili. Ekkert bendir til annars en að um óhapp, en ekki viljaverk, hafi verið að ræða, eins og allt of oft gerist með fólk sem glímir við þennan sjúkdóm. Þetta er ólýsanlegur harmur og erfitt fyrir okkur öll að ná utan um þetta. Forsagan er líka sársaukafull.“

Í grein sinni segir Sigmar að Jón Kjartan hafi farið í meðferð rétt fyrir síðustu áramót.

„Vegna plássleysis var bið eftir áframhaldandi meðferð sem varð til þess að hann hélt ekki strax áfram meðferðinni. Jón Kjartan féll skömmu síðar. Sindri Geir var líka að reyna að sækja bata. Hann hafði nokkrum mánuðum fyrr óskað eftir því að komast í meðferð en það var átta mánaða bið. Hann er því miður ekki sá fyrsti sem deyr á biðlista. Bræðurnir hvíla í sama leiði og móðir þeirra sem lést úr fíknisjúkdómnum fyrir fjórum árum.“

Eru ekki í leit að sökudólgi

Sigmar segir rétt að nefna að aðstandendur bræðranna vilja ekki benda fingri á einstaka meðferðarstöðvar og eru ekki í leit af sökudólgi. Þau viti að þetta er grimmur sjúkdómur sem er einstaklega erfiður viðureignar.

„Þau kenna engum einum um. Þeim finnst hins vegar mikilvægt að andlát Jóns Kjartans og Sindra Geirs verði til þess að fólk og ráðamenn opni augun fyrir því hversu alvarleg staðan er. Þau vilja einfaldlega að samfélagið geri betur til að styðja við alla þá sem glíma við fíknivanda. Þau vilja bjarga mannslífum.“

Sigmar segir að vanmatsamfélagsins á skelfilegum og víðtækum afleiðingum þessa sjúkdóms sé meinsemd í okkar samfélagi.

„Tugþúsundir verða fyrir beinum áhrifum af sjúkdómnum á hverjum tíma. Líka börn. Þessi sjúkdómur er nefnilega þannig að hann heltekur ekki bara líf þess veika. Aðstandendur og vinir þjást líka. Mikið. Ef það er eitthvað til sem heitir andleg líðan þjóðar þá er fátt sem hefur verri áhrif á hana en fíknisjúkdómurinn. Til viðbótar er beinn og óbeinn kostnaður samfélagsins í peningum ekki talin í milljörðum heldur milljarðatugum á hverju einasta ári,“ segir Sigmar í grein sinni og bendir á að þetta hafi hann ítrekað talað um á síðustu árum og muni gera áfram.

Vígvöllurinn er samfélagið allt

„Ég veit sem er að vilji allra stjórnmálamanna er að gera betur í þessum málaflokki. Við þurfum bara að breyta þessum vilja í verk. Þetta er málstaður sem kallar á athygli í aðdraganda kosninga og raunverulegar aðgerðir að þeim loknum. Það er von aðstandenda Jóns Kjartans og Sindra Geirs að það rætist.“

Sigmar biður fólk að velta fyrir sér eitt andartak hvernig umræðan í samfélaginu væri ef tveir bræður hefðu látist með fárra klukkustunda millibili í umferðarslysi á sömu gatnamótunum.

„Við værum ekki að velta fyrir okkur viðbrögðum rúmum tveimur mánuðum síðar. Við værum búin að teikna upp öflugt viðbragð og þungavinnuvélar mættar á svæðið. Eðlilega. Hvað gerðum við þegar hraun ógnaði byggð í Grindavík? Á fáeinum vikum reistum við varnargarða. Verkfræðingar og færustu sérfræðingar teiknuðu upp lausn og ræstar voru út gröfur, ýtur og vörubílar og byggðinni var bjargað eins og hægt var. Frábært viðbragð í alla staði.“

Sigmar spyr af hverju við getum ekki reist stærri og öflugri varnargarða utan um allt fólkið okkar sem þjáist og fellur frá vegna fíknisjúkdómsins?

„Í stað þess að taka þetta stríð alvarlega þá lokum við Stuðlum og SÁÁ yfir sumarmánuðina. Og sendum veika fólkið heim, líka börnin. Vígvöllurinn er samfélagið allt og okkar veikasta fólk þarf sárlega bæði vopn og liðsauka til að vinna stríðið.

Í þeim bardaga eru öflugri og fjölbreyttari meðferðarúrræði, ásamt öflugum forvörnum, okkar þungavinnuvélar. Ræsum þær. Strax.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingar ræða ofbeldisölduna sem ríður yfir landið – „Hver andskotinn er í gangi“

Íslendingar ræða ofbeldisölduna sem ríður yfir landið – „Hver andskotinn er í gangi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona mikið mun reikningurinn vegna forsetaskiptanna hækka

Svona mikið mun reikningurinn vegna forsetaskiptanna hækka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Valgeir telur sig hlunnfarinn og veltir fyrir sér hvort hann sé heiðraður eða lítilsvirtur

Valgeir telur sig hlunnfarinn og veltir fyrir sér hvort hann sé heiðraður eða lítilsvirtur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naumlega tókst að forðast mikinn árekstur í Vestmannaeyjahöfn – Skipstjóri Herjólfs fór ekki að beiðni hafnsögumanns

Naumlega tókst að forðast mikinn árekstur í Vestmannaeyjahöfn – Skipstjóri Herjólfs fór ekki að beiðni hafnsögumanns
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ákærður 2006 fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa stungið föður sinn – Situr nú í gæsluvarðhaldi vegna andláts móður sinnar

Ákærður 2006 fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa stungið föður sinn – Situr nú í gæsluvarðhaldi vegna andláts móður sinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hvað finnst Norðmönnum um Íslendinga? „Við Norðmenn verðum einfaldlega að hneigja okkur“

Hvað finnst Norðmönnum um Íslendinga? „Við Norðmenn verðum einfaldlega að hneigja okkur“