fbpx
Föstudagur 25.október 2024
Fréttir

Verðlag á matvöru hækkar aftur

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 22. október 2024 17:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hækkar það nú með nokkrum rykk. Hækkunin milli mánaðanna september og október nemur einni prósentu, að mestu leyti vegna hækkunar á kjötvöru. Í fréttatilkynningu frá verðlagseftirliti Alþýðusambands Íslands kemur fram að þótt aðrir flokkar hækki meira – súkkulaði hækkar til að mynda enn, mest hjá Nóa Síríus – þá vegur kjötið þyngra í neyslu. 

Þetta er fyrsti mánuðurinn frá því í mars þar sem verðlagseftirlitið mælir ekki lækkun verðlags í neinni verslun milli mánaða.

Goði og SS hækka verð

Í tilkynningu segir að verðlagseftirlitið hafi nýlega greint frá því að verð hækkaði á vörum SS víða fyrir tveimur vikum. Vörur frá Goða hafi einnig hækkað, en lítilla breytinga verður vart á verði Ali og Stjörnugríss, þar sem verð lækka meira að segja í Nettó.

Súkkulaðiverð hefur hækkað mikið á árinu og heldur hækkunin áfram þennan mánuðinn hjá Nóa Síríus og Freyju. Langmesta hækkunin er á vörum frá Nóa Síríus í Bónus. Í Nettó lækkar meðalverðið á vörum allra framleiðenda nema Nóa Síríus.

Verslanir Samkaupa – Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland – hafa verið á miklu ferðalagi í verðlagningu síðan í sumar. Verð þar hækkaði verulega í júlí og lækkaði svo um munaði í ágúst, sem átti nokkurn þátt í sveiflum verðlagsvísitölu matvöru þá mánuði. 

Nettó-breytingin, ef svo má segja, er að röðun verslana á matvörumarkaði er nú önnur en áður. Nettó, sem áður var tíðum um 12% yfir lægsta verði, eða 11% hærra en Bónus, er nú 6,4% yfir lægsta verði að meðaltali – aðeins um 3% yfir Bónus. Fjarðarkaup, sem áður voru rétt undir Nettó, eru nú 14,7% yfir lægsta verði að meðaltali. 

Kjörbúðin hefur einnig færst til og er nú að jafnaði ódýrari en Extra, öfugt við það sem áður var. Hins vegar hafa Iceland og Krambúðin tekið kipp og eru nú sjónarmun lengra frá lægsta verði en þær voru fyrir verðhækkanir og -lækkanir í sumar.

Prís enn ódýrast

Prís er enn ódýrasta matvöruverslunin sem verðlagseftirlitið skoðar reglulega, en verð þar er að meðaltali 0,8% hærra en þar sem það er lægst. Bónus er nú að meðaltali 3,42% yfir lægsta verði og Krónan 4,30%. 

Nýmjólk afar ódýr í Costco

Í óreglulegri skoðun á verðlagi í Costco um helgina kom í ljós að MS nýmjólk fékkst þar á 149 krónur fyrir lítra. Verð mjólkurinnar í Prís er 197 krónur og í Bónus 209 krónur. Nýmjólk kostaði síðast undir 150 krónum í Bónus haustið 2018, eða fyrir sex árum. Í sumar kostaði nýmjólk í Costco 199 krónur. Fleiri vörur sem skoðaðar voru:  

  • D-vítamínbætt nýmjólk :179 krónur í Costco, 253 í Bónus og 254 í Nettó og Krónunni. 
  • Bonaqua, epla, 10 í kassa: 849 í Costco, 929 í Bónus, 930 í Krónunni. 
  • Arna léttmjólk: 279 í Costco, 331 í Bónus, 332 í Nettó og Krónunni. 
  • Smjörvi: 649 krónur í Costco, 729 í Bónus, 739 í Nettó og Krónunni. 

Nettó oft jafn dýrt og Krónan

Sjá má að Nettó er hér komið á sama verð og Krónan. Þetta gildir ekki aðeins um þessa handfylli af vörum. Þegar 1363 vörur voru skoðaðar sem finna má í bæði Nettó og Krónunni voru 939, eða 69%, á sama verði. 

Þegar skoðaðar eru vörur sem fundust í Nettó, Bónus og Krónunni er gamalt mynstur sjáanlegt: Krónan er einni krónu dýrari en Bónus í 556 tilfellum af 617, eða í 90% tilfella. Nýlundan er að Nettó er nú líka einni krónu dýrari en Bónus í 72% tilfella. Nettó og Krónan voru á sama verði í 79% tilfella í þessum síðari samanburði.

Aðferðafræði

Verðlagsbreytingar eru reiknaðar með vigtun vöruflokka og verslana. Þegar talað er um breytingu á verðlagi er um að ræða veginn útreikning, en breyting á verði merkir stakan samanburð eða óvegið meðaltal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Jón Daði í Wrexham
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Guðmundur Ingi ómyrkur í máli: Dauðsfallið um síðustu helgi aðeins toppurinn á ísjakanum

Guðmundur Ingi ómyrkur í máli: Dauðsfallið um síðustu helgi aðeins toppurinn á ísjakanum
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Faðir piltsins sem lést á Stuðlum stígur fram: Spyr sig stöðugt hvernig þetta gat gerst

Faðir piltsins sem lést á Stuðlum stígur fram: Spyr sig stöðugt hvernig þetta gat gerst
Fréttir
Í gær

Vill að Ásmundur Einar axli ábyrgð og segi af sér – „Hræsnin og bullið“

Vill að Ásmundur Einar axli ábyrgð og segi af sér – „Hræsnin og bullið“
Fréttir
Í gær

Örvar lýsir skelfilegri vist í tælensku fangelsi – Kakkalakkar í klefunum, stæk hlandlykt og sofið á ísköldu gólfi án dýnu

Örvar lýsir skelfilegri vist í tælensku fangelsi – Kakkalakkar í klefunum, stæk hlandlykt og sofið á ísköldu gólfi án dýnu
Fréttir
Í gær

Dularfullt andlát konu á sjötugsaldri var í Austurborginni

Dularfullt andlát konu á sjötugsaldri var í Austurborginni
Fréttir
Í gær

Jón Gnarr skýtur hugmynd Áslaugar Örnu í kaf og leggur til aðra hugmynd

Jón Gnarr skýtur hugmynd Áslaugar Örnu í kaf og leggur til aðra hugmynd