fbpx
Föstudagur 25.október 2024
Fréttir

Kona sakfelld fyrir að hafa ekið á barn á reiðhjóli

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 22. október 2024 14:30

Héraðsdómur Norðurlands eystra. Mynd: Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona um þrítugt var þann 16. október síðastliðinn sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa í ágústmánuði árið 2023 ekið á barn sem var að hjóla yfir gangbraut.

Konan var sökuð um að hafa ekki sýnt nægilega varúð og aðgæslu og hafa ekið of hratt miðað við aðstæður. Barnið viðbeinsbrotnaði, fékk hrufl og skrapsár víða um líkamann og glóðarauga.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra og má búast við því að atvikið hafi átt sér stað á Akureyri en það kemur ekki fram í texta dómsins.

Ákæruvaldið féll frá kröfu um sviptingu ökuréttar við þingfestingu málsins.

Konan játaði sök og var dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Hún hefur hreinan sakaferil.

Konan neitaði bótakröfu í málinu og verða þær teknar fyrir í sérstöku einkamáli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Jón Daði í Wrexham
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Guðmundur Ingi ómyrkur í máli: Dauðsfallið um síðustu helgi aðeins toppurinn á ísjakanum

Guðmundur Ingi ómyrkur í máli: Dauðsfallið um síðustu helgi aðeins toppurinn á ísjakanum
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Faðir piltsins sem lést á Stuðlum stígur fram: Spyr sig stöðugt hvernig þetta gat gerst

Faðir piltsins sem lést á Stuðlum stígur fram: Spyr sig stöðugt hvernig þetta gat gerst
Fréttir
Í gær

Vill að Ásmundur Einar axli ábyrgð og segi af sér – „Hræsnin og bullið“

Vill að Ásmundur Einar axli ábyrgð og segi af sér – „Hræsnin og bullið“
Fréttir
Í gær

Örvar lýsir skelfilegri vist í tælensku fangelsi – Kakkalakkar í klefunum, stæk hlandlykt og sofið á ísköldu gólfi án dýnu

Örvar lýsir skelfilegri vist í tælensku fangelsi – Kakkalakkar í klefunum, stæk hlandlykt og sofið á ísköldu gólfi án dýnu
Fréttir
Í gær

Dularfullt andlát konu á sjötugsaldri var í Austurborginni

Dularfullt andlát konu á sjötugsaldri var í Austurborginni
Fréttir
Í gær

Jón Gnarr skýtur hugmynd Áslaugar Örnu í kaf og leggur til aðra hugmynd

Jón Gnarr skýtur hugmynd Áslaugar Örnu í kaf og leggur til aðra hugmynd