Þetta segir Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.
Guðmundur Ingi gerir þar að umtalsefni breytingu sem tekur gildi um næstu áramót en þá verður persónuafsláttur lífeyris- og eftirlaunaþega sem búsettir eru erlendis felldur niður. Þetta hefur verið gagnrýnt talsvert eins og DV hefur fjallað um.
Sjá einnig: Anna ósátt við ríkið: Hegnt fyrir að vilja frekar dvelja á sólarströnd en í volæði á Íslandi
Guðmundur Ingi segir að breytingin hafi verið vandlega falin í frumvarpi um gistináttaskatt sem afgreitt var í flýti skömmu fyrir þinghlé. Í henni hafi komið fram ný birtingarmynd grimmilegrar skerðingarstefnu stjórnvalda.
„Þar inni á milli ákvæða var að finna eina setningu, sem hefði fellt niður persónuafslátt lífeyrisþega og öryrkja sem búa erlendis. Fólk sem hefur gefist upp á því að hokra við sárafátæktarmörk hér á landi og haldið út í leit að betra lífi. Á einu bretti átti að svipta þau 65.000 króna persónuafslætti með fjögurra daga fyrirvara. Þessi hópur fólks er svo bágstaddur að í sumum tilfellum þýddi sviptingin að þau gætu ekki lengur staðið undir leigukostnaði,“ segir Guðmundur Ingi í grein sinni og spyr:
„Hvernig getur land sem lýsir yfir jafnræði í lögum og stjórnarskrá, ráðist svona harkalega að sínum verst settu þegnum og mismunað þeim með þessum hætti? Þetta er brot á grundvallarmannréttindum og mun aðeins ýta þeim enn dýpra í fátækt og vonleysi.“
Hann segir að fjármálaráðuneytið, undir stjórn Sjálfstæðisflokksins, beri ábyrgð á þessu en spyr hvar samstarfsflokkarnir, Framsókn og Vinstri græn, voru þegar þessi ákvörðun var samþykkt.
„Hvernig gátu þau stutt slíka aðgerð án mótþróa eða umræðu? Þetta er enn frekari staðfesting á því að þessir flokkar hafa enga samúð eða skilning á aðstæðum fólks sem býr við fátækt og vanlíðan vegna vanbúnaðar almannatryggingakerfisins.“
Guðmundur Ingi segir að stjórnarandstaðan, undir forystu eigin formanns, Ingu Sæland, hafi keypt gálgafrest og komið í veg fyrir að þetta tæki gildi nú um áramótin. Það sé aðeins tímabundinn sigur.
„Við munum ekki hvílast fyrr en lagagreinin verður felld brott svo koma megi í veg fyrir að lífeyrisþegum og öryrkjum verði mismunað hrapallega. Það er engin afsökun fyrir því að skerða lífsgæði þeirra enn frekar,“ segir hann og endar grein sína á þessum orðum:
„Í andsvörum við fyrirspurn minni í síðustu viku sögðu bæði fjármála- og forsætisráðherra vera þeirrar skoðunar að þetta mál og áhrif þess þyrfti að skoða nánar. Hugsanlega eru stjórnvöld að átta sig á alvarleika þessa fjárhagslega ofbeldis sem átti að skella á fátækasta fólk landsins með aðeins fjögurra daga fyrirvara. Flokkur fólksins mun beita sér af fullum þunga til að tryggja að réttlæti verði haft að leiðarljósi í öllum ákvörðunum sem varða velferð og lífsgæði þessa hóps.“