fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Fréttir

Sjö íslenskir ríkisborgarar handteknir hérlendis og framseldir síðastliðinn áratug

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 22. janúar 2024 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjö íslenskir ríkisborgarar hafa verið handteknir hérlendis frá árinu 2013 og verið afhentir öðru ríki á grundvelli handtökuskipunar og allir til meðferðar sakamáls í ríkinu sem óskaði eftir afhendingu hins eftirlýsta. Allir voru þeir framseldir til annarra Norðurlanda.

Kemur þetta fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um handtöku og afhendingu íslenskra ríkisborgara.

Spurningin sem lögð var fram 29. nóvember síðastliðinn var svarað 21. desember og lögð fram á Alþingi í dag. Hlé var á þingfundum 16. desember til dagsins í dag:

„Hversu oft hafa íslenskir ríkisborgarar verið handteknir frá byrjun árs 2016 og afhentir öðru ríki á grundvelli handtökuskipunar vegna fyrirhugaðra réttarhalda? Í hversu mörgum þessara tilfella lá dagsetning réttarhalda ekki fyrir? Svar óskast sundurliðað eftir ríkjum, þeim afbrotum sem viðkomandi aðilar voru grunaðir um og eftir því hvort dagsetning réttarhalda lá fyrir eða ekki.“

Málsmeðferðarreglur móttökuríkis eiga við eftir framsal

Í svari dómsmálaráðherra kemur einnig fram að málsmeðferðarreglur ríkisins sem hefur fengið viðkomandi afhentan eiga þá við um framhaldið. Með öðrum orðum eiga þær reglur sem gilda um meðferð sakamála við um málið í móttökuríkinu og er aðkomu íslenskra stjórnvalda lokið nema sett hafi verið ákveðin skilyrði fyrir afhendingunni. Íslensk stjórnvöld gætu til dæmis þurft að bregðast við ef skilyrði var sett fyrir því að viðkomandi yrði sendur aftur til Íslands til afplánunar en þá þyrfti að bíða eftir niðurstöðu dóms og íslensk stjórnvöld að taka við málinu þegar sú niðurstaða lægi

fyrir.

Tegund Brots Lyktir Skilyrði
Fíkni­efna­laga­brot Af­hent­ur dönsk­um yf­ir­völd­um í októ­ber 2013 Bann við framsali annað
Fíkni­efna­laga­brot Af­hent­ur dönsk­um yf­ir­völd­um í októ­ber 2013 Bann við framsali annað
Fíkni­efna­laga­brot Af­hent­ur dönsk­um yf­ir­völd­um í októ­ber 2013 Bann við framsali annað
Sifja­skap­ar­brot Af­hent­ur dönsk­um yf­ir­völd­um í febrú­ar 2014 Bann við framsali annað
Rán/​líkams­árás Af­hent­ur finnsk­um yf­ir­völd­um í maí 2016 Bann við framsali annað
Líkams­árás Af­hent­ur norsk­um yf­ir­völd­um í nóv­em­ber 2017 Bann við framsali annað
Sifja­skap­ar­brot Af­hent­ur norsk­um yf­ir­völd­um í des­em­ber 2023 Bann við framsali annað

Send aft­ur til Íslands til að afplána.

Nýjasta málið er framsal Eddu Bjarkar Arnardóttur sem ítrekað hefur verið fjallað um í fjölmiðlum, en hún er komin heim til Íslands og mun afplána dóm sinn hérlendis.

Sjá einnig: Edda Björk kemur til Íslands á föstudag

Fyrirspurn um hvort ríkissaksóknari hafi frestað afhendingu íslenskra ríkisborgara er svarað neitandi, en upplýst að í einu tilviki hafi afhendingu hefur verið hafnað.

Í svari dómsmálaráðherra er nánar farið yfir hvaða lög gilda um framsal. Meginreglan er sú að á íslenska ríkinu hvílir skylda til að handtaka og afhenda menn, ef lagaskilyrði eru uppfyllt, nema fyrir hendi séu synjunarástæður þær sem tilgreindar eru í lögunum og gildir það sama um íslenska og erlenda ríkisborgara að þessu leyti, sbr. þó sérskilyrði í 27. gr. laganna.

Þann 6. desember lagði Diljá einnig fram fyrirspurn um handtöku og afhendingu einstaklinga til Íslands, svar barst 27. desember og lagt fram á þingi í dag:

Hversu margir einstaklingar hafa verið handteknir og afhentir til Íslands frá gildistöku laga nr. 51/2016? Svar óskast sundurliðað eftir því frá hvaða ríkjum þeir voru afhentir, ástæðu afhendingar og þeim afbrotum sem lágu henni til grundvallar?“

Sex hafa verið framseldir til Íslands síðustu sjö ár

Sex einstaklingar hafa verið handteknir og afhentir til Íslands, ýmist á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar (EAW) eða norrænnar handtökuskipunar (NAW), og sundurliðast það svo:

Frá hvaða ríki Ástæða afhendingar Afbrot EAW/NAW
Nor­egi Meðferð máls Kyn­ferðis­brot o.fl. NAW
Svíþjóð Meðferð máls Kyn­ferðis­brot NAW
Finn­landi Meðferð máls Kyn­ferðis­brot o.fl. NAW
Lett­landi Meðferð máls Fíkni­efna­laga­brot EAW
Króatíu Meðferð máls Brot í op­in­beru starfi EAW
Spáni Meðferð máls Fíkni­efna­laga­brot EAW

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur er með hugmynd um hvernig bjarga megi Akranesi en til þess þurfi hugrekki – „Við verðum að snúa vörn í sókn“

Vilhjálmur er með hugmynd um hvernig bjarga megi Akranesi en til þess þurfi hugrekki – „Við verðum að snúa vörn í sókn“
Fréttir
Í gær

Hröð útbreiðsla Covid veldur Landspítalanum vandræðum

Hröð útbreiðsla Covid veldur Landspítalanum vandræðum
Fréttir
Í gær

Klóra sér í kollinum yfir árásarmanni Trump – Hvers vegna reyndi hann að myrða forsetaframbjóðandann?

Klóra sér í kollinum yfir árásarmanni Trump – Hvers vegna reyndi hann að myrða forsetaframbjóðandann?
Fréttir
Í gær

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi
Fréttir
Í gær

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“
Fréttir
Í gær

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman